155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

262. mál
[15:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa mikilvægu þingsályktunartillögu og þann mikla samhug sem er að finna hér á þingi. Ég held að við sjáum í fyrsta skipti nánast alla þingmenn vera á þessari tillögu sem er afspyrnumikilvæg og það er mikilvægt að við styðjum við það góða starf sem unnið hefur verið á síðustu misserum í þessum efnum. Ég verð að viðurkenna að ég er kannski af þeirri kynslóð að þegar sjálfsvíg áttu sér stað í minni bernsku og á mínum unglingsaldri þá var yfirleitt talað um að það mætti ekki tala of mikið um þetta því það var mikil hræðsla við smitáhrifin. Maður er svolítið brennimerktur af því, hvað má segja og hvernig má tala um þetta ofboðslega mikilvæga mál. Mér þykir hér, í þessari þingsályktunartillögu og greinargerð sem henni fylgir, hafa tekist mjög vel til og þakka hv. þingmanni kærlega fyrir það.

Ég vona að okkur lánist að afgreiða þessa tillögu því að það er svo sannarlega mikill samhugur að baki henni og ég vona líka að okkur lánist að tala um þennan málaflokk af mikilli virðingu og samhug með þeim sem kunna að eiga um sárt að binda. Það er eins og sagt var í ræðunni að þegar einstaklingur gerir tilraun til sjálfsvígs eru ofboðslega margir sem sitja særðir eftir og því fylgir mikil sorg og það fylgja ofboðslega margar spurningar, oft spurningar sem bara er aldrei hægt að svara. En ef við getum komist nær því að finna einhvers konar orsakaferli og reyna að uppræta það og tryggja að þeir aðilar sem eru að veita stuðning geti verið til staðar og geti veitt réttan stuðning á réttum tímapunkti þá er til mikils unnið. Þannig að ég segi bara til hamingju með þetta og ég vænti þess að við sem þing getum sameinast um þetta mikilvæga mál.