155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

262. mál
[15:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Við stöndum frammi fyrir mikilvægu verkefni sem snertir okkur öll sem samfélag. Sjálfsvíg er harmleikur sem skilur eftir sig djúp sár, ekki aðeins hjá aðstandendum heldur einnig í samfélaginu öllu. Það er kominn tími til að við tökum höndum saman og ráðumst í átak til að draga úr sjálfsvígum á Íslandi. Eins og kom hér fram áður þá höfum við í gegnum árin séð sveiflur í tíðni sjálfsvíga hér á landi. Meðaltal sjálfsvíga hefur verið á bilinu 32–38 frá aldamótum en eins og kom fram áðan þá benda nýlegar tölur til þess að þetta sé að hækka. Hver einstaklingur sem við missum á þennan hátt er einum of mikið og á bak við hverja tölu er manneskja með sögu, með fjölskyldu og drauma sem aldrei urðu að veruleika. Og eins og kom fram hér áðan í tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni þá eru á bak við hvern einstakling sem fremur sjálfsvíg að meðaltali 135 einstaklingar. Það þýðir að á hverju ári eru það um 6.000 manns á Íslandi sem upplifa sorg og missi vegna sjálfsvíga. Þetta eru vinir okkar, þetta eru fjölskyldur okkar og þetta er samstarfsfólk okkar.

Mig langar því að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að koma fram með þessa þingsályktunartillögu en á bak við þessa tillögu, sem við ræðum hér, standa um 50 þingmenn úr öllum flokkum. Fyrir þau sem eru góð í stærðfræði þá eru 50 þingmenn allir þingmenn sem ekki eru annaðhvort ráðherrar eða þingforsetar. Sú breiða og þverpólitíska fylking sem hefur sett nafn sitt við þetta sýnir í verki að hér er um mál að ræða sem er ofar allri pólitík.

Við þurfum að passa að við horfum ekki bara á sjálfsvíg sem einstaka atburði, heldur er sjálfsvíg alltaf flókið samspil andlegra, líkamlegra, félagslegra og umhverfislegra þátta. Oft eru það áföll eins og atvinnumissir, sambandsslit, ástvinamissir, einelti og annað sem er orsökin. Við getum reynt að greina og við þurfum að greina orsakir til þess að við getum beint aðgerðum okkar að þeim sem mest þurfa á hjálp að halda. Og þrátt fyrir að ýmislegt gott hafi verið gert, bæði af hinu opinbera og félagasamtökum, þá er alveg ljóst að við getum gert betur og það er okkar skylda að tryggja að allir hafi aðgang að þeirri hjálp og stuðningi sem þeir þurfa, sérstaklega þegar það er gengið jafn langt og það er að taka ákvörðun um að taka eigið líf. Það hefur oft verið sagt að þegar ákvörðunin er komin hjá viðkomandi einstaklingi þá höfum við þrjár mínútur til þess að breyta hug hans. Það er oft á þessum þremur mínútum sem fólk hringir í hjálparlínur, hringir í aðstandendur eða sendir einhver skilaboð þannig að á þessum þremur mínútum getur bara það hvernig er tekið á móti því haft áhrif á það hvort fólk ákveður að halda áfram eða ekki. Við þurfum að muna það líka að þetta er ekki bara spurning um þessa einstaklinga sjálfa vegna þess, eins og er sagt frá á ótrúlega fallegan hátt í bókinni Tómið eftir sjálfsvíg eftir Önnu Margréti Bjarnadóttur, þá hafa sjálfsvíg svo ótrúlega mikil áhrif á aðstandendur, ekki bara strax á eftir, ekki bara vikurnar, mánuðina heldur áratugina á eftir. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur, að sjálfsögðu, til að takast á við sjálfsvíg og draga úr þeim en við þurfum líka að passa að við búum til leiðir til að taka utan um fjölskyldurnar, vinina og aðra sem eftir sitja og eiga um sárt að binda.

Við verðum að efla forvarnir á öllum stigum. Það þýðir að við þurfum að vinna með börnum og ungmennum í skólum. Við þurfum að veita aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og styðja við þau félagasamtök sem sinna þessu mikilvæga starfi. Það er ekki nóg að bregðast við eftir á. Við þurfum að vera framsýn og vinna að því að koma í veg fyrir að fólk upplifi slíka örvæntingu að sjálfsvíg virðist eina leiðin út. Við þurfum að auka fræðslu. Við þurfum að opna umræðuna. Hún er erfið. Það er ekkert auðvelt að standa hér og tala um þetta en við verðum að gera það. Við verðum að breyta viðhorfinu í samfélaginu og við þurfum að draga úr þeim fordómum sem fylgja geðrænum veikindum. Við erum samfélag og við berum ábyrgð á hvert öðru og það er mikilvægt að við hlustum á þá sem eru í vanda, við sýnum þeim samkennd og bjóðum þeim hjálpina. Stundum getur nefnilega lítil athöfn eins og það að spyrja hvernig þau hafi það skipt sköpum. Stundum skiptir máli líka bara að faðma viðkomandi.

Ég held að þau 50 nöfn þingmanna, þeirra sem rituðu nafn sitt við þessa mikilvægu þingsályktunartillögu, sýni þá miklu áskorun þingsins sem skorar á stjórnvöld að tryggja þann stuðning sem þarf til þess að sú rannsókn sem Lífsbrú er að vinna í skili niðurstöðum sem geta bjargað mannslífum. Við getum aldrei sett verðmiða á líf en við getum fjárfest til að koma í veg fyrir harmleiki sem hafa ómælanleg áhrif á samfélagið. Látum ekki tölurnar vera það sem skilgreinir þetta vandamál því á bak við hverja tölu er manneskja, fjölskylda og samfélag sem þjáist. Með samstilltu átaki getum við sem erum hér inni gert breytingar til hins betra.