rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.
Frú forseti. Ég vil koma hingað upp og fagna því að þessi tillaga sé komin fram og þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að eiga frumkvæði að þessu og draga þingheim með á þessa þingsályktunartillögu sem hefur augljóslega mjög víðtækan stuðning, enda mjög skiljanlegt að svo er. Ég er svolítið sammála því sem hér hefur verið sagt. Það er ekki sama hvernig við tölum um það sem er undir í þessu máli, það getur verið flókið og snúið að koma orðum rétt að því sem býr í brjósti okkar þegar við tölum um þetta. Þetta er samt sem áður umræða sem við megum ekki vera hrædd við að taka. Ég held að hér sé, verði þetta mál samþykkt, að teiknast upp sú staða að við erum þá komin með enn eitt vopnið í vopnabúrið til að berjast gegn sjálfsvígum og dauðsföllum vegna óhappaeitrana. Þar undir er auðvitað það frumskilyrði sem við þurfum að hafa í höndunum sem er að átta okkur á því hvað það er sem gerist hjá fólki þegar þetta verður niðurstaðan, annars vegar sjálfsvíg eða hins vegar óhappaeitrun. Þetta er þekkingarleit sem skilar okkur betri vígstöðu þegar við erum að kortleggja aðgerðir til að bregðast við. Það er mjög þakkarvert að þetta mál sé komið fram.
Það hefur svo sem verið komið inn á það hér og er ágætlega gerð grein fyrir í greinargerðinni með málinu hvert markmiðið er með því. Það er verið að rannsaka mögulegt orsakaferli, t.d. áföll, lýðfræðilegar breytur, komur og innlagnir á heilbrigðisstofnanir og breytingar í lífi einstaklinga í undanfara sjálfsvígs og óhappaeitrana. Ég hef auðvitað talsvert mikið talað um það sem snýr að fíkn og fíknisjúkdómum. Þar undir er fólk sem deyr vegna óhappaeitrana eða fremur sjálfsvíg. Þetta er auðvitað ekki eina breytan sem undir er þegar kemur að þessu þingmáli, svo sannarlega ekki, en stór er hún engu að síður, ætla ég að leyfa mér að fullyrða. Við sem þekkjum fíknisjúkdóma af eigin raun og höldum hópinn til að halda okkur í bata frá sjúkdómnum hittumst í stórum hópum og tölum mikið saman og ég held að við höfum ágæta yfirsýn, þótt hún sé ekki vísindaleg, yfir það hversu margir sem eru með fíknisjúkdóm sjá ekki neina framtíð fyrir sér og kjósa þá leið að fremja sjálfsvíg. Þeir eru alveg óskaplega margir. Maður heyrir um þetta oft á ári í þeim hópi karla og kvenna sem eru að reyna að halda sér á beinu brautinni og í bata varðandi þennan fíknisjúkdóm. Þau eru bara óskaplega mörg, dæmin.
Það er auðvitað alltaf einhver aðdragandi að þessu. Það er mjög auðvelt að segja að hið eiginlega dánarmein sé ekki sjálfsvíg heldur kannski frekar fíknisjúkdómur en það sem leiðir að þessum sorglega lokapunkti er kannski ekki alltaf eins hjá öllum. Ég held að það sem undir er í þessu þingmáli geti kannski hjálpað okkur aðeins að kortleggja þetta.
Það er komið inn á þessa tölfræði í greinargerðinni, hvað andlátum vegna óhappaeitrana hefur fjölgað mikið frá aldamótum og til og með 2021, það er verið að kortleggja þetta aðeins og t.d. nefnt hvað ópíóíðaeitrunum hefur fjölgað mikið hjá fólki, sér í lagi núna á seinni árum. Ég vil segja það að maður hefur svolítið sterka tilfinningu fyrir því þegar kemur að dauðsföllum vegna ofskömmtunar, þegar fólk tekur of mikið af efnum en er ekki í neinum sjálfsvígshugleiðingum — slík tilfelli á undanförnum vikum eru óvenjumörg, ætla ég að leyfa mér að fullyrða — að þetta er bara enn ein áminningin um það að við þurfum að gera miklu betur en við erum að gera. Þetta er sérstaklega sorglegt þegar ungt fólk er annars vegar. Stundum erum við að heyra dæmi af mjög ungu fólki, meira að segja undir tvítugu, sem tekur of stóra skammta t.d. af ópíóíðum. Það er óhappaeitrun. Það er banaslys í raun og veru á þjóðvegi fíknarinnar. Þetta er eitthvað sem við þurfum að greina og kortleggja. Það er ansi mikill aðdragandi að þessu, bæði þegar kemur að sjálfsvígunum og því sem ég er að nefna núna. Það er eitthvað í samfélagsgerðinni, það er eitthvað í fjölskyldulífi einstaklinga, það er mögulega eitthvað í skólum, möguleikum fólks til atvinnuþátttöku, eitthvað í félagslegum aðstæðum fólks, sem gerir það að verkum að það endar stundum svona sorglega. Þetta hef ég margoft talað um og mér finnst það vera svolítið einkenni þegar við ræðum um þessi mál að samfélagið er að vanmeta þennan vanda alveg óskaplega mikið. Við höfum mikinn vilja, held ég öll, til að grípa svolítið sterkt inn í og reyna að bæta samfélagsgerðina, bæta meðferðarúrræði, bæta möguleika fólks á að koma sér yfir á beinu brautina en ég held að við séum öll að vanmeta það hversu vandinn er óskaplega mikill og stór, því miður.
Það er ótrúlega mikil fagþekking til í samfélaginu okkar þegar kemur að þessu, mjög mikil, mikið af sérfræðingum og flottu fólki sem kann, getur, skilur og veit en úrræðin eru samt of fá. Það er vanmat á þeim fjölda sem er í viðkvæmri stöðu og getur endað sem hluti af þeirri tölfræði sem við erum að tala um hér þegar kemur að þessu tiltekna þingmáli um sjálfsvíg og óhappaeitrun.
Mér finnst frábært að sjá að við erum sammála þvert á flokka um að stíga einhver skref og fagna því mjög eindregið að svo sé. Auðvitað er þetta þannig á Alþingi að við erum yfirleitt mjög sammála um ákveðin markmið, alveg fullkomlega sammála um það. Við erum öll hér í vinnu til að reyna að láta gott af okkur leiða og bæta samfélagið en það eru síðan leiðirnar að markinu sem gera það að verkum að stundum skilur á milli. En þegar svona alvarleg tilvik eru undir, eins og þetta þingmál er að reyna að taka utan um, þá er bara ótrúlega hlýtt og gott að sjá að það er þverpólitísk samstaða um þetta og svona margir þingmenn sem kjósa að styðja þetta mál. Ég ætla bara að ítreka þakkir mínar til hv. þm. Ingibjargar Isaksen fyrir að hafa frumkvæði að því að flytja þetta mál. Þetta er þarft og gott mál og gott að sjá að það er víðtækur stuðningur við það. Vonandi verður þetta til þess að við fáum betri upplýsingar, betri gögn til þess að bregðast við og fækka þeim sem fremja sjálfsvíg eða þeim sem falla vegna óhappaeitrana.