155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

262. mál
[15:48]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka öllum þeim þingmönnum sem tóku til máls um þetta mál fyrir málefnalegar og einlægar umræður. Það er rétt sem hefur komið fram að þetta er viðkvæmt málefni, þetta snertir okkur öll og við erum stundum svolítið óörugg um hvernig við eigum að nálgast þessa umræðu. Mér finnst það hafa tekist vel hér í dag. Við höfum tekið þessa umræðu af virðingu. Það er mikilvægt að það sé gert þegar þetta er rætt. Ég tek undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni sem segir að það sé kominn tími til að við tökum höndum saman og vinnum gegn sjálfsvígum. Það sýnir sig svo sannarlega hér í þinginu í dag að allir þingmenn, utan þingforseta og ráðherra, setja sig á þetta mál. Saman erum við að vinna að því að við getum bætt samfélagið okkar með einhverjum hætti. Það er þakkarvert að finna stuðninginn og ég er hrærð yfir stuðningnum sem þetta mál fær. Ég er afar þakklát fyrir það hvernig hv. þingmenn nálguðust þessa umræðu.

Það er mikilvægt, eins og kom fram í máli mínu áðan, að við öflum gagna og fáum skýringar þannig að við getum útbúið forvarnirnar okkar og greint þetta niður og meðferðaraðilar geti, ef þeir sjá merki um að einstaklingur sýni vissa áhættuþætti sem búið er að greina, gripið inn í og þá sé hægt að hjálpa fólki. Við viljum byggja upp samfélag sem er skilningsríkt, samfélag sem er umhugað um nágrannann. Það er oft talað um að það þurfi þorp til að ala upp barn og ég held að það sé afar mikilvægt í dag að við sem samfélag áttum okkur á því að það er mikilvægt að við berum virðingu hvert fyrir öðru. Það er mikilvægt að við berum virðingu fyrir skoðunum hvert annars. Við getum verið sammála um að vera ósammála. Það er allt í lagi. Hér í þinginu tökumst við oft á en þetta mál sýnir að það er ýmislegt sem getur sameinað okkur. Við erum að taka þetta saman, mikil breidd, þverpólitísk fylking, það er mikil samstaða um þetta mál. Við erum að sýna þjóðinni að það er meira sem sameinar okkur en sundrar þó svo að umræðan hér í þingsal sé oftar um það sem sundrar okkur en það sem sameinar.

Ég vil einnig þakka Hrafni Óskarssyni og Guðrúnu Jónu hjá embætti landlæknis fyrir hjálpina varðandi þetta mál. Það var ómetanlegt að hafa þau til ráðleggingar, skrafs og ráðagerða. Einnig vil ég enn og aftur ítreka þakkir til félaga minna fyrir stuðninginn og þakka alla þá vinnu sem á sér stað í samfélaginu dag hvern hér á landi, bæði hjá stofnunum og félagasamtökum, til að taka utan um þessi mál.

Ég lýk ræðu minni hér í dag eins og ég hóf hana. Ég vil hvetja alla sem finnst lífið stundum ekki þess virði að lifa því til að leita sér hjálpar. Það er hægt að hringja í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða fara á netspjallið 1717.is, hringja í símanúmerið 1700 á vegum Heilsuveru eða í Píeta-símann 552 2218. Við eigum öll að vera vakandi fyrir merkjum um andlega vanlíðan hjá þeim sem standa okkur nærri og vera til staðar. Ég bind vonir við að samstaðan í þinginu verði til þess að vinna þessu máli framgang og veit að hv. velferðarnefnd mun taka málið til umfjöllunar og vinnslu. Ég þakka kærlega fyrir umræðuna.