staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði. Með mér á þessari þingsályktunartillögu eru þingflokkur Flokks fólksins.
„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram lagafrumvarp fyrir lok ársins 2025 þess efnis að staðgreiðsla skatta fari fram við innborgun í lífeyrissjóð en ekki við útgreiðslu lífeyrissparnaðar. Þeim fjármunum sem breytingin skilar ríkissjóði skuli varið í þágu aukinnar velferðar.“
Í greinargerð með þingsályktunartillögunni segir m.a. að hún hafi áður verið flutt á 150., 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi. Þetta er sem sagt í sjötta sinn sem ég reyni að ná í einhverjar krónur í þetta risavaxna ríki í ríkinu sem lífeyrissjóðirnir eru, en í hin fimm skiptin hefur það ekki gengið eftir. En þessi tillaga er endurflutt og hún er endurflutt óbreytt.
Á síðustu árum hafa eignir lífeyrissjóðanna stóraukist og námu um 7.722 milljörðum kr. í lok júní 2024 samkvæmt upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands. Inngreiðslur í samtryggingarsjóði eru um 316 milljarðar kr. á ári. Árið 2000 námu eignir lífeyrissjóðanna um 80% af vergri landsframleiðslu en árið 2023 var hlutfallið komið í 171% samkvæmt hagtölum lífeyrissjóða sem birtast á vef Landssamtaka lífeyrissjóða, lífeyrismál.is. Það er áhyggjuefni hve mikil umsvif lífeyrissjóða eru í íslensku viðskiptalífi. Stjórnir þeirra eru skipaðar fulltrúum verkalýðsfélaga og atvinnulífsins sem síðan skipa stjórnarmenn til að sitja fyrir hönd sjóðanna í stjórnum fyrirtækja sem sjóðirnir eiga hlut í. Þannig eru tengslin á milli eigenda fjármagnsins, sjóðfélaganna, og þeirra sem annast fjárreiður lífeyrissjóða lítil sem engin. Útkoman er sú að stór hluti íslenskra fyrirtækja er í eigu óvirkra aðila sem starfa samkvæmt lögbundinni ávöxtunarkröfu en ekki vilja sjóðfélaganna sjálfra. Undanfarin ár hafa lífeyrissjóðir sætt gagnrýni fyrir að fjárfesta í áhættusömum fyrirtækjum, greiða stjórnarmönnum ofurlaun og styðja viðskipti sem sjóðfélögum blöskrar. Með því að greiða skatta af iðgjöldum við innlögn í lífeyrissjóði má sporna við því að lífeyrissjóðir verði óeðlilega stórir miðað við stærð hagkerfisins.
Fjármuni skortir til að ráðast í nauðsynlegar úrbætur á íslenska velferðarkerfinu. Heilbrigðiskerfið stendur á brauðfótum, bætur almannatrygginga duga ekki til framfærslu og bilið milli hinna ríku og hinna fátæku eykst ár frá ári. Því er nauðsynlegt að auka tekjur ríkissjóðs og nýta þær í þágu fólksins. Skattlagning við innlögn í lífeyrissjóð í stað þess að taka hana við útgreiðslu er sársaukalaus leið til að stórauka tekjur ríkissjóðs og gerir okkur kleift að styrkja velferðarkerfið án þess að skerða ráðstöfunartekjur almennings.
Samkvæmt gildandi fyrirkomulagi eru iðgjöld í lífeyrissjóði og mótframlög vinnuveitenda ekki skattlögð. Við skulum átta okkur á því að það gilda ákveðin lög í landinu. Hér gilda lög um staðgreiðslu skatta, við þurfum öll að hlíta þeim lögum. Við erum öll undir það seld að greiða staðgreiðslu af launum okkar um leið og við fáum launin greidd, ekki satt? Lífeyrissjóðirnir fengu hins vegar á einhverjum tímapunkti undanþágur frá þessari löggjöf þannig að þeir búa við undanþágureglu staðgreiðslunnar og fá að halda hjá sér öllu því fé sem annars kæmu í okkar sameiginlega sjóð, ríkissjóð, sem við gætum svo nýtt til þess að bæta stöðu fólksins í landinu.
En samkvæmt gildandi fyrirkomulagi eru iðgjöld í lífeyrissjóði og mótframlög vinnuveitenda bara alls ekki skattlögð. Þess í stað eru greiðslur úr lífeyrissjóðum til lífeyrisþega skattlagðar. Þannig er skattlagningu þeirra fjármuna sem mynda stofn lífeyrissparnaðar frestað þar til kemur að útgreiðslu þeirra. Við vitum að ávöxtun lífeyrissjóðanna okkar er ekki áhættulaus og þó að við getum fagnað því láni að stundum gangi vel og ári vel og ávöxtunin gangi eftir þá er það með þetta eins og allt annað og sjóðirnir okkar hafa líka lent í mikilli ágjöf, samanber efnahagshrunið 2008 þar sem í rauninni töpuðust hátt í 8.000 milljarðar af eignum sjóðanna.
Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ríkissjóði sæki skatttekjurnar strax við innborgun og þessi undanþáguregla verði felld brott.
Við vitum líka að margir hafa fallið frá áður en kemur að því að þeir fari að nýta sér lífeyrissjóð og þau réttindi sem starfsævin hefur gefið þeim. Af þessum greiðslum verður aldrei greiddur tekjuskattur. Þar sem um samtryggingarsjóð svokallaðan er að ræða þá fellur það í rauninni allt í hítina og ekki nóg með það. Við í Flokki fólksins höfum náttúrlega ítrekað líka mælt fyrir frumvörpum um að við eigum skilyrðislaust að njóta eignarréttarins yfir þeim fjármunum sem af okkur hafa verið teknir, lögþvingað, til greiðslu inn í sjóðina. Við höfum í rauninni ekki haft neitt um það að segja, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þetta er nú orðin ansi há upphæð, 15,5%. Þetta er með hreinum ólíkindum. Við vitum það líka og við höfum séð að miðað við stærð okkar, miðað við þetta litla samfélag sem við búum í, miðað við önnur tugmilljóna samfélög, þá er þetta bákn lífeyrissjóðakerfisins okkar hreinlega bákn. Það er ríki í ríkinu. Við erum með allt of marga sjóði. Yfirbyggingin er allt of dýr. Ég man fyrir fjórum árum að ég fékk upplýsingar um að yfirbyggingin á þessum sjóðum kostaði yfir 20 milljarða kr. og þá vorum við ekki komin með upplýsingar um það hvað sjóðirnir væru að greiða til erlendra aðila, ráðgefandi aðila sem voru að aðstoða þá við að fjárfesta erlendis. Við fengum ekki upplýsingar um það. En við vitum að það er farið illa með peningana okkar. Það er það eina sem við vitum. Við vitum líka að lífeyrissjóðirnir eiga orðið nánast í öllu því sem til er í samfélaginu í formi fyrirtækja. Þeir verða fjárfesta og verða að reyna að ávaxta eignirnar okkar.
Ég hef ekki hitt enn þá einn einasta einstakling sem greiðir í lífeyrissjóð sem ekki vildi frekar sleppa við að greiða staðgreiðsluna þegar greitt er úr sjóðunum. Þegar við erum orðin fullorðin og erum það farsæl að ná þeim aldri að geta farið að innleysa til okkar réttinn sem lífeyrissjóðurinn okkar veitir okkur þá er tekin af okkur staðgreiðsla en það er þá sem við gjarnan vildum frekar sleppa við hana. Það hefur sýnt sig að venjulegur launþegi, hinn venjulegi verkamaður sem hefur gengið í gegnum starfsævina á lágmarkslaunum eða einhverjum millilaunum er aldrei feitur af því að fá greitt úr lífeyrissjóðnum sínum þegar kemur að útborgun, bara aldrei. Og svo eru það þeir sem lenda í óhöppum, verða fyrir slysum og lenda á örorku og þeir þurfa að nýta lífeyrisréttindi sín frá lífeyrissjóðnum sínum. Þá er tekinn skattur af því, akkúrat þegar þeir þurfa sem mest á hverri krónu að halda í því fátæktarkerfi sem almannatryggingakerfið býður þeim.
Miðað við greiðslur í lífeyrissjóði t.d. á árinu 2023 og við værum að taka þennan 37,98% skatt, við skulum segja það, myndi staðgreiðsla við innborgun skila ríkissjóði og sveitarfélögum hvorki meira né minna en rúmum 120 milljörðum kr. á ári. Þá er ég að tala um á hverju einasta ári, ekki bara einhverja einskiptisaðgerð eins og að selja frá okkur gullgæsir og banka og það sem gefur okkur fjármuni, það sem í rauninni mokar peningum inn í ríkissjóð. Ég er ekki að tala um það. Ég er að tala um að á hverju einasta ári myndum við fá þessum krónum fleira.
Fyrrverandi formaður Viðreisnar sem talinn er vera ansi klókur í hagfræði og öllu því sem lýtur að reikningi og tölum, tölulegri meðferð, benti einfaldlega á það að hér væri allt að vinna og engu að tapa. Það væri mantra sem ætti í rauninni ekki rétt á sér að ætla að halda því fram að við það að afnema þessa undanþágureglu og taka staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóðina þá værum við að rýra í rauninni framtíðareign sjóðfélaganna, vaða að lífeyrissjóðunum og veita þeim eitthvert náðarhögg. Það er látið í veðri vaka að okkur fari ekki fjölgandi þó svo að okkur hafi fjölgað um 20% á örfáum síðustu árum, þó svo að það séu alltaf fleiri hendur sem eru að leggja hönd á plóg í vaxandi umsvifum í samfélaginu. Það er látið líta svo út að við staðgreiðslu við innborgun sé þetta eina batteríið á jörðinni sem færi bara hreinlega á hausinn.
En við þurfum á þessum peningum að halda inn í ríkissjóð núna. Við vitum hvernig efnahagsástandið er í landinu í dag og það er búið að vera þannig og fara versnandi síðan ég kom á Alþingi Íslendinga og þess vegna er það að ég er að mæla fyrir þessu máli í sjötta sinn. Ég fann ekki upp þetta stórfurðulega kerfi, það er nokkuð ljóst, en það er löngu orðið tímabært að þessi undanþáguregla lífeyrissjóðanna verði afnumin. Annað eins bákn er hvergi til í samfélaginu eins og einmitt lífeyrissjóðakerfið okkar sem er einfaldlega ríki í ríkinu þar sem sjóðfélagarnir sjálfir eru svoleiðis gjörsamlega fótumtroðnir og það eru í rauninni atvinnurekendurnir, hugsið ykkur, sem koma sjóðunum okkar í rauninni akkúrat ekkert við, sem hafa tögl og hagldir í þeim. Og þau ofurlaun sem er verið að taka sér og yfirbyggingin sem er á sjóðakerfinu okkar er algerlega fyrir neðan allar hellur. Það þarf algjörlega að stokka þetta kerfi upp. Það er hægt að spara tugi milljarða á ári bara við það að breyta umgjörðinni og þeirri sjálftöku sem augljóslega einhverjir gjarnan vilja nýta sér með því að geta gengið í sjóðina okkar eins og sína eigin. Við vitum að þarna eru einstaklingar sem hanga á þessu eins og hundar á roði og munu aldrei sleppa, munu aldrei sleppa því sjálfviljugir. Það liggur á borðinu. Við, löggjafinn, verðum að stíga inn og átta okkur á því að við erum að tala hér um hátt í 8.000 milljarða kr. eignir bákns sem er ríki í ríkinu. Við þurfum á þessum 120 milljörðum árlega að halda. Við þurfum á þessum fjármunum að halda. Við verðum að geta gert eitthvað til að byggja upp okkar veiku stoðir sem eru búnar að vera á fallandi fæti að undanförnu. Þannig að ég segi: Það er löngu, löngu tímabært. Ég trúi ekki öðru heldur en að þessi þingsályktunartillaga fari að vekja það umtal að við getum tekið raunverulega samtalið um tillöguna og um þessa undanþágureglu, undanþágu lífeyrissjóðanna frá staðgreiðslunni.
Það er þörf á aukinni fjárfestingu í velferð og því er brýnt að ríkið nýti auknar tekjur vegna staðgreiðslu við innborgun í þágu þeirra sem mest þurfa á aðstoð að halda. Efla þarf rekstur heilbrigðiskerfisins og fjölga dvalar- og hjúkrunarrýmum. Draga þarf úr skattbyrði láglaunafólks. Það þarf hreinlega að hætta að skattleggja fátækt. Það þarf að auka ráðstöfunartekjur þeirra sem glíma við sárafátækt, sem er haldið hér í sárri neyð. Það myndi minnka líkurnar á að fólk þyrfti að fjármagna neyslu með skuldsetningu og festast endanlega í fátæktargildrunni. Grundvallarforsenda þessarar tillögu er að auknir fjármunir hins opinbera verði nýttir í þágu fólksins.