155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.

51. mál
[16:11]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Kannski er ég eitthvað að misskilja en við greiðum ekki staðgreiðslu af því sem er tekið í lífeyrissjóð af okkur sem launþegum heldur eigum við að greiða tekjuskatt af lífeyrissjóði þegar við fáum hann afhentan og erum að fara með þá fjármuni í neyslu. Það getur vel verið að ég þurfi að lesa þetta eitthvað aðeins betur yfir en ég skil ekki alveg röksemdafærsluna, að þetta sé að draga úr skattbyrði láglaunafólks, þ.e. ef hún er ekki færð yfir á annan hóp.

En hvað um það. Mig langaði bara til að koma hérna upp og vekja athygli á því að lífeyrissjóðirnir eru byggðir upp og hafa verið hér í 50 ár og við erum að njóta þeirra greiðslna. Það gera láglaunahópar, sem eldri borgarar eru vissulega ef þeir njóta bara ellilífeyris. Þannig að ég held að við getum alveg talað um að þær tekjur sem ríkið hefur séu að skila sér til baka á réttan hátt.