155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.

51. mál
[16:15]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Enn og aftur erum við að ræða um tillögu til þingsályktunar um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóð. Bara til upprifjunar: Hvað gerði bankahrunið? Munið þið hvað skeði í bankahruninu? Hvað töpuðu lífeyrissjóðirnir miklu af peningum? Uppreiknað í dag voru það ekki bara hundruð milljarða heldur þúsund. Þá spyr ég: Ef þeir töpuðu þúsund milljörðum um hve mikla skattpeninga var að ræða? Ef það er 40% þá eru þarna upp undir 400 milljarðar.

Ég spyr: Eru einhverjir aðrir en lífeyrissjóðir á Íslandi sem mega fara með skattpeninginn á markað og gambla með hann? Nei, þeir eru einu aðilarnir sem fá að gambla með framtíðarskattpening almennings. Og þeir hafa tapað háum upphæðum og stórkostlega miklu af skatti. Llífeyrissjóðirnir eiga núna 8.000 milljarða. Þeir eru búnir að fjárfesta kerfisbundið í sjálfum sér innan lands og eiga orðið í svo til hverju einasta fyrirtæki sem hreyfist á markaði. Það er galið í sjálfu sér að skattleggja ekki inngreiðslur í lífeyrissjóð og líka séreignarsparnaðinn því að með því myndum við örugglega ná inn 120 milljörðum lágmark.

Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn reiknar ekki út raunverulega framfærslu, hvað þarf til að lifa á Íslandi. Ég get alveg sagt ykkur að 300.000 kr. útborgaðar duga ekki, það er alveg á hreinu og við vitum það öll. Hverjir eru aðallega að fá 300.000 kr. útborgað á Íslandi, úr lífeyrissjóðum og almannatryggingakerfinu? Konur, vegna þess að þær hafa lágan lífeyri.

Þetta er bara refsikerfi og ég verð að segja eins og er að það er alveg stórfurðulegt að við skulum vera með sárafátækt fólk, börn, fjölskyldur, árið 2023 og kerfið ekki þróaðra en það að við setjum veikt fólk, börn, í biðraðir hjá hjálparsamtökum eftir mat. Við getum breytt þessu, við getum útrýmt þessu. Hvernig í ósköpunum getum við leyft okkur þetta? Og ég spyr: Hvers vegna í ósköpunum eru þeir flokkar sem hafa látið þetta viðgangast áratug eftir áratug enn við völd? Þeir lofuðu því fyrir kosningar að þeir ætluðu að breyta þessu kerfi? Ekkert skeður.

Við erum að ræða þingsályktunartillögu Flokks fólksins um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði og á sama tíma erum við með skerðingar í lífeyrissjóðakerfinu upp á 45,5%. Stór hluti af ávinningi og ávöxtun lífeyrissjóðanna er notaður til að refsa fólki og þá sérstaklega konum, með 45,5% skerðingar eftir aumt frítekjumark upp á 25.000 kr. sem nú á að hækka í 36.500 kr. en ætti að vera 50.000–60.000 kr. og við erum með þingsályktunartillögu um að það verði 100.000 kr. Hverju myndi það skila okkur? Jú, það myndi skila því að konur dyttu út því að meðaltekjur hjá konum eru 70.000–100.000 kr. úr lífeyrissjóði. Það væri ekki verið að skerða þann smánarlífeyri sem konur eru með.

Við eigum líka að spyrja okkur: Af hverju erum við með hóp af fólki á eftirlaunum, við starfslok, ákveðinn hóp sem fær yfir 765.000 kr. úr lífeyrissjóði á mánuði? Þessi hópur hefur þá unnið í lífeyrissjóðsslottóinu. Hvernig? Jú, þeir sleppa við Tryggingastofnunina, skerðingastofnunina sjálfa. Þessir aðilar, sem eru með 765.000 kr. eða meira úr lífeyrissjóði, verða ekki fyrir neinum skerðingum. Þeir mega vinna alveg eins og þeir vilja án skerðingar. En ef þeir eru þarna undir — nei, þá máttu ekki vinna nema með skerðingum þannig að þú tapir. Þú færð frítekjumark en ef þú ferð yfir það frítekjumark þá ertu skertur. Þessir sömu aðilar sem eru með 765.000 kr.; ef þeir eiga 100 millj. kr. í banka, fá ávöxtun upp á 10%, þá mega þeir bara borga 22% skatt. En ef þeir eru hinum megin, í almannatryggingakerfinu, og gera nákvæmlega sama hlutinn, hvað skeður þá? Jú, þeir eru skertir. Þeir fá frítekjumark upp á 100.000 kr. yfir árið. Og ef þeir fara yfir það, 22% skattur og 45% skerðing. Þeir geta þar af leiðandi aldrei ávaxtað fé sitt, verðtryggð ávöxtun þeirra verður alltaf í mínus. Hinir sem eiga peningana eru klæddir í samfesting, með axlabönd og belti og þeir fá að gera það sem þeir vilja.

Við erum með refsikerfi og við erum með umbótakerfi og við erum með umbótakerfi fyrir þá sem eru ríkir en refsikerfi fyrir þá sem eru fátækir. Hvernig í ósköpunum eiga þessir einstaklingar að lifa af þegar við erum með skatta- og skerðingastefnu Tryggingastofnunar? Þess vegna erum við að tala um inngreiðslur í lífeyrissjóð svo að fólk geti lifað með reisn. Þá getum við líka horft á persónuafsláttinn. Hvernig hefur verið farið með persónuafsláttinn í tíð ríkisstjórna undanfarinna ára? Jú, það hefur verið farið með hann á þann hátt að hann hefur aldrei fylgt launaþróun. Það hefur verið séð til þess að það bitni harðast og verst á þeim sem síst skyldi, þeim sem eru að reyna að lifa af í þessu kerfi, reyna að lifa af 300.000 kr. í útborgun. Ef við myndum skatta við inngreiðslu í lífeyrissjóð fengjum við 120 milljarða kr. og þá gætum við útrýmt fátækt. Við gætum borgað 450.000 kr. skatta- og skerðingarlaust sem lágmarksframfærslu. Við gætum þá líka örugglega, ef þetta yrði þannig, reiknað það út nákvæmlega hvað þarf til að lifa af á Íslandi. Það er alveg stórfurðulegt að þegar útreikningarnir eru gerðir á Íslandi er alltaf reiknuð út einhver hungurlús en séð til þess að það er aldrei reiknað út hvað fólk þarf í húsnæði.

Það er alltaf verið að búa til falskar tölur til að reyna að sannfæra fólk um að það hafi það svo gott. En því miður, ríkisstjórnin hefur sýnt annað. Við sjáum það á kjaragliðnun undanfarinna áratuga. Við þurfum ekki að fara langt aftur í tímann til þess að muna hvernig þetta var í hruninu. Við þurfum ekki að fara langt aftur í tímann til að muna þegar ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar setti 10% lækkun á allar lífeyrisgreiðslur almannatrygginga og lofaði því statt og stöðugt að hún yrði fyrst til að hækka aftur. En var það gert? Nei. Þá fengu allir hækkanir nema lífeyrissjóðsþegar. Þetta var upphafið að mestu kjaragliðnun í almannatryggingakerfinu, kjaragliðnun sem síðan hefur valdið því að það vantar ekki 100, ekki 200 heldur örugglega meira en 200.000 kr. inn í kerfið. Þar af leiðandi: Ef við tækjum okkur til og samþykktum þetta frumvarp, sem væri frábært, gætum við séð til þess að enginn á Ísland þurfi að lifa við fátækt. Við getum jafnvel líka haft peninga til þess að koma heilbrigðiskerfinu, skólakerfinu og ýmsum þeim kerfum sem hafa verið fjársvelt í tíð þessarar ríkisstjórnar síðustu árin, og sérstaklega í tíð fjórflokksins síðustu áratugina, í lag. En auðvitað vill ríkisstjórnin ekki gera það; hún er að verja fjármagnseigendur. Hún setur fjármagnseigendur í samfesting, setur á þá axlabönd og belti og sér til þess að þeir fái að halda peningunum sínum. Á kostnað hverra? Jú, á kostnað þeirra sem eru í þessu kerfi, þessu ömurlega bútasaumaða kerfi sem fjórflokkurinn hefur búið til, varið og nært undanfarinn áratug.