155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Húnavallaleið.

52. mál
[16:36]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um Húnavallaleið. Ásamt þeim sem hér stendur er hv. þm. Ásmundur Friðriksson á málinu. Hér erum við að ræða sem sagt þá tillögu að fela hæstv. innviðaráðherra að fela Vegagerðinni það hlutverk að uppfæra forsendur fyrir uppbyggingu Húnavallaleiðar og hefja samtal við Húnabyggð um hvort Húnavallaleið verði bætt við sem nýframkvæmd í samgönguáætlun. Þá verði jafnframt metið hvort Húnavallaleið verði samvinnuverkefni milli ríkis og einkaaðila.

Það var einmitt hæstv. innviðaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, þá umhverfisráðherra, sem úrskurðaði fyrir rúmum áratug að Blönduósbær og Húnavatnshreppur skyldu merkja sérstaklega veglínu Húnavallaleiðar á nýjum aðalskipulagsuppdrætti áður en skipulagið fengist staðfest. Sveitarfélögin hafa nú sameinast en flokksbróðir hennar, þáverandi hæstv. innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, bað vegamálastjóra um að stoppa vinnuna á þeim tíma með bréfi sem ráðherrann sendi Vegagerðinni og er raunverulega einstakt í sögunni. Á þeim tíma gagnrýndi ég þetta enda taldi ég ekki einsýnt að þetta stæðist lög og enginn sérstakur rökstuðningur var fyrir ákvörðuninni eins og gert var ráð fyrir í lögum. Það er því ánægjulegt að mæla fyrir málinu hér í dag. Svo getum við tekið umræðuna um kosti Húnavallaleiðar.

Aðeins um umferðaröryggi. Húnavallaleið snertir fyrst og fremst á umferðaröryggi sem hefur verið mikið hitamál þegar kemur að núverandi vegstæði. Núverandi vegur frá Blönduósi og norður um Langadal er þröngur og hlykkjóttur og uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru um sjónlengdir samkvæmt veghönnunarreglum Vegagerðarinnar og er með hættulegustu köflum á veginum milli Reykjavíkur og Eyjafjarðar. Vegagerðin vann fyrir nokkrum árum skýrslu sem sýndi að tilkoma Húnavallaleiðar myndi draga verulega úr umferðarslysum. Með styttingu leiðarinnar um 14 kílómetra, veghalla og betri veglínu yrði slysum og óhöppum fækkað um 11 á ári að meðaltali eða alls um 220 á næstu 20 árum. Þetta eru gamlar tölur og líklega væru þær hærri í dag. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem núverandi vegur er ekki aðeins hættulegur heldur er þung umferð um þennan vegarkafla eða um 1.000 bílar á sólarhring að meðaltali. Ef við gefum okkur að helmingur bíla myndi velja nýja leið myndu sparast rúmlega 2,5 milljónir ekinna kílómetra á ári.

Aðeins um arðsemi og þjóðhagslegan ávinning, frú forseti. Húnavallaleið er hagkvæm framkvæmd þegar litið er til þjóðhagslegs ávinnings. Samkvæmt greiningu sem unnin var af Vegagerðinni er arðsemin af þessari framkvæmd talin verulega mikil, raunar meiri en af mörgum öðrum samgönguverkefnum sem nú eru í gangi, þ.m.t. Sundabraut. Til samanburðar er arðsemin af Sundabraut talin vera um 10–14%, hinir svokölluðu innri vextir, en arðsemin af Húnavallaleið er talin vera á bilinu 15–20% og jafnvel meira en 20%. Þetta er ekki aðeins fjárfesting í betri samgöngum heldur einnig fjárfesting í betri nýtingu fjármuna og styttri flutningstíma fyrir vörur og þjónustu. Með þessum breytingum er áætlað að framkvæmdin muni borga sig upp á innan við fimm árum sem gerir hana að einu hagkvæmasta samgönguverkefni sem við getum ráðist í.

Jákvæð áhrif á atvinnulíf og byggðaþróun. Vegagerð í dreifbýli er ekki aðeins spurning um að tryggja betri samgöngur heldur einnig að stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Íbúar Eyjafjarðar og svæðisins þar um kring hafa lengi kallað eftir vegstyttingum til að bæta aðgengi þeirra að höfuðborgarsvæðinu og öðrum mikilvægum þjónustusvæðum. Það er lykilatriði að stytting leiðarinnar milli Akureyrar og Reykjavíkur skapar hagkvæmri aðstæður fyrir flutninga og þjónustu sem styrkir atvinnulíf og byggðir á svæðinu. Minni flutningskostnaður hefur áhrif á samkeppnishæfni atvinnulífsins og styður við starfsemi fyrirtækja, sérstaklega á sviði landbúnaðar og ferðaþjónustu.

Þrátt fyrir að sumir hafi áhyggjur af áhrifum Húnavallaleiðar á Blönduós er ljóst að umferð um bæinn mun ekki hverfa alveg. Umferð frá Sauðárkróki og utanverðum Skagafirði mun áfram fara um bæinn, auk þess sem ferðamenn sem áforma að stoppa á Blönduósi munu gera það áfram. Hins vegar mun draga úr þungri gegnumstreymisumferð sem bætir loftgæði og dregur úr álagi á gatnakerfi bæjarins.

Aðeins um samvinnuverkefni sem lausn til framkvæmda. Einn möguleikinn sem kemur til álita við framkvæmd Húnavallaleiðar er að nýta samvinnuverkefni milli ríkis og einkaaðila. Þetta hefur reynst vel á öðrum stöðum, t.d. í Hvalfjarðargöngunum þar sem gjaldtakan tryggði fjármögnun og rekstur mannvirkisins. Með þessu fyrirkomulagi myndi einkaaðili bera hluta af fjármögnun og rekstri sem minnkar beinan kostnað fyrir ríkið og dreifir áhættunni. Arðsemi Húnavallaleiðar gerir hana aðlaðandi fyrir einkaaðila þar sem framkvæmdin er talin hafa mjög jákvæð áhrif á samfélagið og skila fjárhagslegum ávinningi á tiltölulega skömmum tíma. Það er mikilvægt að við leitum að skapandi leiðum til að framkvæma slíkar nauðsynlegar vegabætur án þess einungis að treysta á beinar fjárveitingar úr ríkissjóði.

Samfélagslegur stuðningur og almenningsálit. Stuðningur við Húnavallaleið er áberandi þegar litið er til almenningsálits. Í skoðanakönnun sem Gallup gerði árið 2019 kom í ljós að 66,2% svarenda voru hlynnt framkvæmdinni á meðan aðeins 11,6% voru andvíg. Þetta sýnir að verulegur hluti þjóðarinnar sér mikilvægi þess að bæta samgöngur og öryggi á þessari leið. Þessi stuðningur er sérstaklega sterkari á Norðurlandi þar sem vegstyttingar hafa lengi verið til umræðu. Í könnun sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri framkvæmdi fyrir SSNE um innviði á Norðurlandi eystra töldu 63% svarenda frekar eða mjög mikilvægt að ráðast í Húnavallaleið og skorar þessi framkvæmd einna hæst af öllum mögulegum samgöngubótum, ef ekki hæst. Aukinn þrýstingur íbúa á Norðurlandi og aukning í umferð ferðamanna um þessar leiðir eykur nauðsyn þess að ráðast í Húnavallaleið fyrr en síðar. Með hverju ári sem líður án þess að þessi framkvæmd fari af stað eykst hættan á óþarfaslysum og -umferðaróhöppum.

Að lokum, frú forseti: Húnavallaleið er verkefni sem sameinar umferðaröryggi, arðsemi, byggðaþróun og samfélagslega ábyrgð. Með því að leggja Húnavallaleið myndum við ekki aðeins bæta öryggi vegfarenda heldur einnig stytta ferðatímann milli Reykjavíkur og Akureyrar og styrkja atvinnulíf á Norðurlandi. Það er kominn tími til að við tökum af skarið og hefjum þessa framkvæmd. Þetta er fjárfesting í betri framtíð fyrir vegfarendur, fyrirtæki og íbúa landsins. Þetta er bara hluti af stærri mynd sem er möguleg í þeim vegstyttingum sem er hægt að fara í á milli Eyjafjarðar og höfuðborgarsvæðisins. Auk þess sem hér er fjallað um má nefna Hvalfjarðargöngin, þau voru komin. Við getum rætt Sundabrautina sem er tímasparandi og stytting á ferðatíma. Við erum að tala um Borgarnes þar sem sveitarfélagið leggur mikla áherslu nú á að leiða umferðina fram hjá Borgarnesi. Það var kannski ekki þannig fyrir 10, 15 árum en áherslur eru komnar á það. Síðan er það Vindheimaleið í Skagafirði. Þessar augljósu styttingar sem hægt er að fara í, sem skapa styttri vegleiðir og stytta ferðatíma, má benda á að gætu verið um 45 mínútur á milli höfuðborgarsvæðisins og Eyjafjarðar og þar með austur um, fyrir austan Eyjafjörðinn.

Hér er því um að ræða hluta af mjög mikilvægu verkefni sem er að efla og styrkja samgöngur á þessu landsvæði. Þetta er einn hluti af því púsli sem við ræðum hér í dag. Það er ánægjulegt að fá þá loksins tækifæri til að mæla fyrir málinu og ég hef nú lokið máli mínu.