155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Húnavallaleið.

52. mál
[16:52]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil óska byrja á að óska hv. þm. Þorgils Magnússyni fyrir að koma inn á þingið með jómfrúrræðuna um þetta mál. Ég er gríðarlega upptekinn af umferðaröryggismálum, það er bara þannig, og þetta er umferðaröryggismál. Við erum að tala um að það er verið fækka slysum. Við ræðum kannski betur aðeins á eftir einstaka punkta sem komu fram í ræðu hv. þingmanns en þetta er umferðaröryggismál í grunninn. Þetta er líka ein hagkvæmasta vegaframkvæmd sem við getum farið í í þessu landi. Ég efast reyndar um að það finnist annað verkefni, nema kannski einhverjar einstakar framkvæmdir í borginni, sem hefur arðsemi eins og við erum að tala um hér. Hún er ótrúleg. Það kemur bara fram í skýrslu Vegagerðarinnar. Ég bara brýni alla þingmenn til að lesa skýrslu Vegagerðarinnar frá 2011 eða 2012 um þessa framkvæmd, vegna þess að Vegagerðin kláraði nefnilega skýrsluna þrátt fyrir bréf þáverandi hæstv. innanríkisráðherra.

Ég gæti síðan bara tekið — það er svo langt mál að fara í Tröllaskagagöngin, ég þekki framkvæmdina, ég hafði mikinn áhuga á þeirri framkvæmd fyrir 10–15 árum — göng sem eru 21–25 km, úr Hjaltadal yfir í Barkardal eða Hörgárdalinn. Ég sé ekki að við séum að fara í þá framkvæmd í mjög langan tíma. Það yrði væntanlega með topp fimm lengstu göngum í heimi í vegasamgöngum.

Ég vil líka benda hv. þingmanni á að ég er nú kannski sá þingmaður sem hefur einna mest verið að tala um Blönduósflugvöll. Ég hef einmitt mikinn áhuga á að byggja og setja bundið slitlag og er gríðarlega ánægjulegt að því sé lokið. Ég er mjög mikið að hugsa um sjúkraflug og öryggishagsmuni í þessu landi. En þetta mál er fyrst og fremst umferðaröryggismál. Það fækkar slysum og óhöppum um 11 á ári. Það er mikið. (Forseti hringir.) Við erum að losna við hættulegasta kaflann milli Eyjafjarðar (Forseti hringir.) og Reykjavíkur með þessari vegleið sem er örugg.