Húnavallaleið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Það er hægt að bæta öryggismál á mjög auðveldan hátt á núverandi vegi. Það er bara að laga hann. Það er hluti af honum sem er bara nokkuð góður. Það er hægt að laga núverandi veg í því vegstæði sem hann er. Þá þurfum við ekki að fara að byggja nýjar brýr yfir ár, sem kostar peninga. Og eins og hv. þingmaður talar um, að þetta sé svo hagkvæmt og það eigi, ef mig minnir rétt, að borga þetta niður á fimm árum — þetta eru 17 km. Það eru tvær brýr, og önnur töluvert stór, sem þarf að gera þarna.
Svo vil ég bara þakka fyrir að það sé komið bundið slitlag á Blönduósflugvöll. Það eykur öryggi íbúa og ferðamanna á svæðinu gríðarlega og það er mikil bót í því.