155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Húnavallaleið.

52. mál
[16:59]
Horfa

Þorgils Magnússon (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður talar um þessa B- leið sem er þá væntanlega núverandi vegakerfi, svona sirkabát. Það myndi náttúrlega styrkja innviðina mun meira á þessu svæði, heldur en að taka bara strik beint fram hjá eiginlega öllum sem eru þarna á svæðinu, að vera komin með malbikaðan veg og menn geti keyrt um sveitirnar, að það þurfi ekki að keyra á malarvegum sem eru hættulegir og seinfærir og valda sliti á tækjum og öðru slíku. Ég sé samt ekki ávinninginn fyrir samfélagið í Húnabyggð að fara í þessa Húnavallaleið eins og hún er lögð fram.