Húnavallaleið.
Frú forseti. Það er náttúrlega lykilatriði í þessu máli að hv. þingmenn átti sig á því að hér er verið að tala um svokallað samvinnuverkefni og einkafjármögnun á verkefninu. Þetta er lykilatriði. Það er líka kostulegt að hlusta á hv. þingmenn koma hér, þegar við erum að tala um einstaklega arðsama framkvæmd, en þær eru ekki hvert sem litið er, og fara að beita þeim rökum að það eru aðrir vegir sem eru ekki komnir og annað. Þarna er mikil umferð og þetta er mikil vegstytting og þetta er gríðarlega arðsamt. Þetta fækkar slysum og það er svo gríðarlega mikilvægt. Ef við hugsum eins og þeir hv. þingmenn sem hafa komið og talað gegn þessari hugmynd og ef þetta eru viðhorfin, hvaða framfarir sjáum við þá í samgöngukerfinu í landinu? Þetta er afturhald. Þetta er raunverulega afturhald. Ef við getum ekki náð utan um svona framkvæmd sem er sú arðbærasta í landinu, fækkar slysum um ellefu, ef við náum ekki að vera sammála um slíka framkvæmd þá veit ég ekki hvar menn ætla að ná samkomulagi út frá rökum í stóru myndinni.
Ég reikna með að þingmenn Norðvesturlands séu áhugasamir um að fá Sundabraut, eða hvað? Nú veit ég satt að segja ekki hvort þingmenn á Norðvesturlandi eru komnir á þá skoðun að við hættum við að fara í Sundabraut til að klára aðrar framkvæmdir eða tengivegi í kjördæminu, sem er svipuð framkvæmd og þessi varðandi vegstyttingu og tíma, arðbær framkvæmd.
Ég er hér að mæla fyrir tillögu sem er hluti af stórri mynd, framtíðarsýn þegar menn horfa fram á veginn. Þetta er framtíð en ekki afturhald. Að stytta vegalengdir í stóru myndinni. Þar hef ég nefnt Eyjafjörð vegna þess að við erum að tala um veg þar á milli en auðvitað nýtist þetta öllu landinu austur um, risastóru svæði. Ég vara við svona nálgun þegar við tölum um samgöngumál þar sem er farið gegn svona rökum. Þá gætum við alveg eins hætt að tala um Sundabraut sem ég tel eitt mikilvægasta samgöngumannvirkið sem við þurfum að fá, gríðarlega mikilvægt. Eigum við þá bara að hætta að tala um Sundabraut? Er ekki gott að fá þessi mannvirki sem eru arðsöm og góð, fjárfestingu með einkaframkvæmd eða samvinnuverkefni eða hvað það er kallað? Þetta er mikilvægt.
Ég talaði áðan um Tröllaskagagöngin og get komið aðeins meira inn á það núna, sem ég var sérstakur áhugamaður um fyrir margt löngu og hef hugsað mikið um og þekki þessar tölur, yfir í Hóla í Hjaltadal, 60 km leið, 20–25 km göng. En stundum þurfum við að hugsa bara skynsamlega um hluti og fjármagn og hvað hægt er að gera við fjármunina. Þá geta komið aðrar leiðir eins og Öxnadalsheiðin, fyrst hún kom hér upp. Það eru tvær leiðir, annaðhvort 10–11 km löng göng eða, og ég held það sé skynsamlegra, að fara bara rétt undir Bakkaselsbrekkuna og þá eru það göng upp á 4 km. Ég tel skynsamlegra að fara fyrst og klára Fljótagöngin og göngin milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur sem er ytri leiðin á milli þessara samfélaga. Væntanlega eru 20–21 km göng í dag upp á 150 milljarða með einhverjum stórum plús og mínus frá þeirri tölu, það er gríðarlega dýrt.
Það er mikilvægt að fá þessa umræðu því að þau rök sem eru borin hér á borð sem komu frá hv. þingmönnum hér áðan — ég er ekki að kaupa þau. Það er stundum erfitt að fara gegn straumnum en það þarf bara að vera með rökin. Ég get sagt ykkur það að í Eyjafirði og þar austur af, eins og ég kom inn á áðan, þá er þetta talið eitt mikilvægasta verkefnið í samgöngumálum á því svæði, fyrir fólkið, íbúana, fyrir atvinnulífið og ferðaþjónustuna þar með. Ég held að við ættum bara að einbeita okkur að því og heimamenn ættu að taka skrefið sem ég benti á áðan; 29 km vegur, 15 km stytting, klárum bara hina leiðina ef það er virkilegur vilji um að byggja upp sveitina á svæðinu með góðum vegi.
Ég verð líka að segja það hér við þingheim að það hafa ótrúlega margir haft samband í sýslunum í kring, vilja ekki koma fram opinberlega vegna þess að þetta er heitt mál en þeir lýsa yfir mikilli ánægju með þessa tillögu. Þá erum við bara að tala um fólk í sveitunum í kring. Ég held að það sé líka bara fínt fyrir þingmenn á þessu svæði að vita að það er líka fólk sem er mjög áhugasamt um að svona brýnar og góðar vegabætur komi til. Þannig að ég held að það sé kannski það sem ætti að einbeita sér að.
En ég vonast líka til þess að hv. þingmenn Norðvesturkjördæmis komi í umræðu hér á eftir um uppbyggingu Kjalvegar sem er, held ég, það sem getur gert mest af öllu fyrir það svæði en ég mun fara betur í þá umræðu á eftir.
Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.