Húnavallaleið.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og þingmönnum fyrir þessa mikilvægu umræðu. Hér er talað um arðsemi og ávinning. Við getum kannski ekki endilega reiknað okkur ávinninginn af því að komast frá A til B. Vegakerfi landsins telur um 13.000 km. Það er æðakerfi byggðarlaganna allt í kringum landið. Það er staðreynd að einungis 1% af ferðaþjónustunni er á Norðvesturlandi. Ég sat fund á Blönduósi um daginn, í síðustu viku, um ferðaþjónustu á svæðinu. Það eru gríðarleg uppbyggingartækifæri úti á Skagaströnd, á Blönduósi og í Húnavatnssýslunum báðum. Með því að leggja þarna einhverja hraðleið í gegnum þessi byggðarlög þá erum við ekki að veita byggðarlögum í kring nægilega næringu. Ein af meginstoðum í íslensku efnahagslífi er ferðaþjónustan. Við þurfum að hugsa um það hvernig við náum sem mestum ávinningi fyrir allt landið. Með því að byggja upp vegi innan dreifbýlis, í þéttbýlinu — ef við leggjum bara beina leið í gegn eins og þarna er hugsað þá erum við að taka fyrir þessi tækifæri. Það eru áformuð uppbyggingartækifæri í kringum Blönduós, á Skagaströnd. Ég held að þessi leið yrði frekar til að girða fyrir þau tækifæri heldur en að efla þau.
Hv. þingmaður talar um að hann hafi fengið stuðning við þessa tillögu frá fólki á þessari leið eða í Húnavatnssýslunum. Ég verð bara að segja að við erum átta þingmenn kjördæmisins og ég held að þetta fólk sem hefur hringt í hv. þingmann hafi alls ekki símanúmerið hjá okkur, því að við höfum verið brýnd til þess sérstaklega á þessu svæði, nú var kjördæmavika í síðustu viku, að stoppa þessa hugmynd. Hugmyndin sjálf er ekki vitlaus. Hugmyndin um beina og góða braut er ekki vitlaus en við getum ekki borið hana saman við Sundabraut. Við getum talað um Reykjavík og landsbyggðina þar sem við erum að tengja á milli. (Gripið fram í: Mosfellsbæ.) Ég held að Sundabraut hafi ekki örlagarík áhrif á Mosfellsbæ eins og þessi leið. Hugmyndin sjálf er alls ekki úr vegi en við verðum að hugsa um afleiðingar fyrir alla sem eru á þessari leið. Sem þingmenn kjördæmisins og þessa svæðis þá verðum við að horfa á heildarmyndina og hvernig við nýtum þau tækifæri sem þessar stoðir okkar veita byggðarlögunum.