155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Húnavallaleið.

52. mál
[17:15]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Nú hef ég komið að ferðaþjónustunni og er mikill áhugamaður um hana. Það sem er gríðarlega mikilvægt fyrir Blönduós er einmitt að byggja upp áfangastaðinn, ekki gegnumstreymisumferð. 85% af umferðinni sem fer í gegnum Blönduós stoppar ekki á Blönduósi. Fólki finnst það þreytandi hvernig menn eru að ræða þessi mál. Þetta er óvinsælt, eins og á mínu svæði, í mínu kjördæmi. Fólk upplifir þetta neikvætt, þessa umræðu um að þrengja að umferðinni, að lengja vegalengdina um 14, 15 km með tilheyrandi slysahættu, sem er lykilmálið hér. Stærsta málið er að fækka umferðarslysum og óhöppum. Það hlýtur að vera stærsta markmið okkar í samgöngumálum að fækka slysum og óhöppum.

Hv. þingmaður kom inn á það sem ég er akkúrat að benda á þegar ég var að tala um banaslys úti á Skaga. Ég get rakið þetta út um allt land þar sem við þurfum að bæta vegi og annað, en af hverju megum við ekki fækka þessum slysum um 11 ári fyrir umferð sem er ekkert að fara á Blönduós og þar um? Til hvers erum við að viðhalda því? Þetta eru engin rök í málinu. Byggjum frekar upp áfangastaðinn og við getum rætt það í seinna málinu um uppbyggingu Kjalvegar. Ég held að fólk sé nú búið að átta sig á því. Það var ekki þannig þegar maður var að tala um þetta fyrir 15, 20 árum að fólk áttaði sig á því hvað það skiptir miklu máli að byggja upp Kjöl og fá þá umferð yfir. Það er miklu stærra mál, miklu stærra.

Hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri kom fram fyrir einhverjum árum síðan að veltan af sjoppunni hjá N1 á Blönduósi væri um 100 milljónir. Á þeim tímapunkti var þjóðhagslegur ábati samfélagsins 500 milljónir. Þessar 100 milljónir í veltu og sirka tvö störf, eins og kom fram í skýrslunni, kostuðu því ansi mikið sem dæmi. Það er nefnilega þannig að þegar menn skoða þessi gögn, sérstaklega skýrslu Vegagerðarinnar sem ég hef bent á, er ótrúleg saga sem tengist þessu máli — og bréf þáverandi innanríkisráðherra sem var dagsett 15. apríl 2012 frekar en 2011.