155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

Húnavallaleið.

52. mál
[17:18]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður má ekki draga þá ályktun af mínu máli að ég vilji ekki draga úr umferðarslysum. Ég veit alveg að hv. þingmaður er mikill áhugamaður um samgöngur og öruggar samgöngur. Við erum kannski að ræða annan vinkil og hv. þm. Þorgils Magnússon kom líka inn á það að það að byggja upp núverandi vegakerfi þarna í gegn dregur líka úr slysum. Það skiptir máli. Öll uppbygging á vegum skiptir máli. Vetrarþjónusta skiptir gríðarlegu máli í þeim efnum. Ég ætla ekkert að ræða það frekar, enda dettur mér ekki í hug að halda því fram að við getum ekki fækkað umferðarslysum á annan hátt en með þessum hætti. Ég er bara að tala um þann ávinning sem samfélagið í kring hefur af því að farið sé í gegnum byggðarlögin. Ég skil kannski íbúa Eyjafjarðar, vegna þess að þeir eiga kannski ekki erindi á Blönduós, að vilja fara sem fyrst í gegnum það svæði. En við erum að tala um ferðamennina og fólkið sem er að fara þarna í þeim tilgangi. Hvort sem það eru ferðamenn eða að við erum að komast frá A til B þá eru menn hvort eð er ekkert endilega að stoppa. En ég held að við sjáum það alveg að stytting vegar fram hjá byggðarlögum skilar okkur ekki endilega öllum þeim ávinningi sem vegakerfið býður upp á.