Húnavallaleið.
Þetta er að verða ágætisumræða og það er ánægjulegt að fá hana loksins fram hér á þinginu. Það hefur ekki tekist áður. Það kemur einmitt fram hjá hv. þingmanni að það er leiðinlegt fyrir umferð sem hefur ekkert að gera á Blönduós að keyra þessa aukakílómetra. Það segir sig sjálft. Það hafa verið mikil viðbrögð við þessu í gegnum tíðina og ég hef fengið mikil viðbrögð frá t.d. bílstjórum á stórum flutningabílum. Þetta er versti hluti leiðarinnar milli Eyjafjarðar og Reykjavíkur, norðaustanáttin í norðanverðum Langadalnum. Þetta er reynslan. Þessi vegur hverfur ekkert. Svo þegar suðvestanáttin kemur hinum megin, á nýjum vegi eða eitthvað, þá fara menn bara hina leiðina. Þetta er ekkert svo flókið. Ferðamenn á bílaleigubílum, það eru 25.000 bílar og 50–60% af öllum ferðamönnum til Íslands leigja sér bílaleigubíl og þeir munu alveg skila sér á Blönduós. Ég skil þetta ekki alveg með umferðina á Skagaströnd. Það er verið að vinna yfir Þverárfjall fínan veg og búið að bæta hann og annað. Það þarf þá a.m.k. að búa til segul sem ræður við þetta. Svona einföld arðsöm aðgerð sem fækkar slysum þetta mikið — ferðaþjónustan þarf að gera sig það öfluga að geta staðist það og fá fólk sem ætlar sér á Blönduós. Það er frábær uppbygging á Blönduósi. Ég held að frekar ætti að halda áfram með þá uppbyggingu, búa til ferðamannasegulinn og búa til áfangastaðinn en ekki vera að þrýsta umferðinni í gegnum bæinn. Það hljóta allir að sjá að það er ekki leiðin til að byggja upp ferðaþjónustu í stóru myndinni. Er frábært að vera með tjaldstæði öðrum megin og bæinn hinum megin? Af hverju reynum við ekki, sveitarfélagið og heimamenn, að vinna aðeins með veruleikann? (Forseti hringir.) Þess vegna skulum við enn einu sinni taka umræðu um Kjöl á eftir og um mikilvægi ferðaþjónustu.