Húnavallaleið.
Hv. þingmaður, ég elska umræðu um samgöngumál. Þessi er skemmtileg. En Blönduós er ekki bara N1, þótt það blasi við þegar við keyrum fram hjá. Blönduós er svo miklu meira. Ef hv. þingmaður getur sannfært mig um að það verði alltaf sól og blíða á þessum nýja vegi — það eru kannski ekki sömu áttirnar, en kannski öðruvísi og hættulegri sem geta verið t.d. í sviptivindum á þessari nýju leið. (NTF: Ég sagði það …) — Já, en við getum ekki snúið því við fyrr en við erum búin að lenda í storminum hvert við förum.
Varðandi það að taka veginn frá og búa til segla þá vil ég t.d. nefna hin frábæru Dýrafjarðargöng, þar tók leiðin af fjallveg sem ekki var hægt að sinna, hvorki á vetrum og eiginlega ekki á sumrum, en þá er það staðreynd að við förum fram hjá Þingeyri. Ferðamaðurinn og sá sem ætlar á Þingeyri þarf að leggja á sig krók sem er nokkrir tugir kílómetra til þess að fara þangað og það skiptir máli þegar þú velur þér áfangastað. Ég held að það séu fleiri þættir sem við þurfum að horfa á en bara að fækka umferðarslysum og ég held að þessar tölur sem hv. þingmaður er að miða við séu ekki allt nýjar tölur og kannski ekki byggðar á þeim forsendum að allir þættir séu teknir inn.