155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

almannatryggingar.

53. mál
[17:27]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Enn og aftur mæti ég hér til að reyna að tryggja kjör þeirra einstaklinga í samfélaginu sem hafa það bágast. Hér er ég að mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, að fjárhæðir fylgi launavísitölu. Með mér á þessu frumvarpi er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins.

1. gr. frumvarpsins hljóðar svo, með leyfi forseta:

„62. gr. laganna orðast svo:

Fjárhæðir almannatrygginga og frítekjumörk, svo og greiðslur skv. 42. gr., skulu breytast árlega í samræmi við launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“

Og 2. gr.:

„Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Í greinargerð með frumvarpinu kemur m.a. fram að það hafi verið lagt fram á 150., 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi, 20. mál. Það er nú lagt fram að nýju efnislega óbreytt. Sem sagt, ég er að reyna að verja vígið sjötta árið í röð. Þetta er í sjötta skipti sem ég er að reyna að tryggja að löggjöfinni um framreikning á launum almannatryggingaþega sé fylgt, að gildandi réttur sé virtur. Maður á ekki að þurfa að standa hérna til þess að reyna að tryggja löggjöf sem þegar er í gildi en er bara alltaf brotin, alltaf endalaust brotin.

Tvær umsagnir bárust um þetta mál á 154. löggjafarþingi, frá Landssamtökunum Þroskahjálp og Öryrkjabandalagi Íslands. ÖBÍ fjallaði í umsögn sinni um þær alvarlegu afleiðingar sem hafa þegar raungerst vegna þess að kjör lífeyrisþega almannatrygginga hafa ekki fylgt almennri launaþróun. Landssamtökin Þroskahjálp lýstu yfir stuðningi við frumvarpið. Samkvæmt 62. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, skulu greiðslur almannatrygginga, meðlagsgreiðslur skv. 42. gr. laganna og fjárhæð tekjutryggingar skv. 28. gr., breytast árlega í samræmi við fjárlög og skal ákvörðun þeirra taka mið af launaþróun. Við erum sem sagt að tala um launavísitölu, vil ég frekar kalla það. Við viljum tryggja að það sé ekki hafið yfir allan vafa að einhver geðþóttaákvörðun fjármálaráðherra hverju sinni geti ákveðið það hver raunveruleg launaþróun er í landinu og hvernig eigi að koma til móts við almannatryggingaþega þegar verið er að framreikna launin þeirra 1. janúar ár hvert. Við viljum tryggja að launin hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Meginreglan er sú að þessi hækkun á að fylgja hækkun á launum, fylgja launavísitölunni, en sú regla sem nú má finna í 62. gr., sem áður var 69. gr. almannatryggingalaganna, var upphaflega leidd í lög árið 1997 með því markmiði að tryggja — takið eftir, markmiðið með lagaákvæðinu sem sett var á laggirnar 1997, 69. gr., var að tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar myndu njóta hækkunar á ráðstöfunartekjum í sama hlutfalli og almenningur. Þarna er verið að reyna strax að koma í veg fyrir þá þróun sem við erum að verða svo áþreifanlega vör við í dag, þessa sívaxandi kjaragliðnun. Þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, sagði í þingræðu við 1. umræðu frumvarpsins á þeim tíma, þess er innleiddi 62. gr. í lög um almannatryggingar:

„Viðmiðunin á að vera við laun en engu að síður er settur annar lás sem á að gæta þess ef svo vildi til, sem við skulum vona að verði ekki á næstu árum, að launin hækki minna en verðlag eins og hefur nú komið fyrir.“

Í áliti minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarpið var einnig fjallað um sömu frumvarpsgrein. Yfirlýsingar forsætisráðherra í umræðum er tæpast hægt að túlka öðruvísi en svo að orðalag 9. gr. frumvarpsins beri að skilja þannig að bætur almannatrygginga og greiðslur skv. 59. gr. og fjárhæðir skv. 17. gr. skuli beinlínis fylgja launaþróun. Það var meginmarkmiðið og þetta er í rauninni mjög skýrt. Löggjöfin segir einfaldlega að það eigi að fylgja launavísitölunni, launaþróun kalla þeir það, við segjum bara launavísitölunni. Við ætlum að tryggja það með þessu frumvarpi að það verði aldrei geðþótti á því hvort greiðslur til almannatryggingaþega fylgi launaþróun eða vísitölu neysluverðs. Það er alveg galið að það skuli alltaf vera tekin sú mælistika undanfarin ár, sem hefur í rauninni orðið þess valdandi að hér er endalaust vaxandi kjaragliðnun, að miða einmitt við vísitölu neysluverðs þrátt fyrir að vísitala launa hafi verið hærri. En löggjöfin er skýr: Það á að fylgja launavísitölu nema hún sé lægri, sem gerist næstum því aldrei. Í reynd hefur framkvæmdin þó verið önnur. Það virðist vera meginreglan, eins og ég segi, að vísitölu neysluverðs er fylgt þannig að það er sorglegt.

Í umsögn Öryrkjabandalags Íslands um frumvarp þetta sem barst á 153. löggjafarþingi og var ítrekuð á 154. þingi er fjallað um kjaragliðnun almannatrygginga sem ég var að tala um hér áðan og bent á að í desember 2022, fyrir tæpum tveimur árum síðan, þá vantaði í hverjum einasta mánuði vegna þessarar kjaragliðnunar 71.000 kr. Greiðslur öryrkja og eldra fólks í desember 2022, fyrir rétt tæpum tveimur árum síðan, þeirra sem eru að fá greiðslur almannatrygginga og lifa í rauninni ekki á neinum öðrum launum, hafa í rauninni úr engu öðru að moða, áttu að vera 71.000 kr. hærri á mánuði. Nú má reikna með að í dag sé þessi upphæð verulega farin að nálgast 80.000 kr. Sjáið þið hvernig þróunin er og hvernig er í rauninni alltaf klipið af þeim sem síst skyldi, hvernig alltaf er níðst á þeim sem minnst hafa.

Enn og aftur, frumvarp eftir frumvarp, þingsályktunartillögu eftir þingsályktunartillögu, mál eftir mál kemur Flokkur fólksins til að reyna að berjast fyrir þá sem eiga bágt í samfélaginu. Við erum að berjast fyrir réttlætinu. Við erum raunverulegur Flokkur fólksins og því fyrr sem fólkið okkar gerir sér grein fyrir því, því fyrr munum við bæta þetta ástand, því fyrr munum við leiðrétta þetta óréttlæti, því fyrr munum við höggva í kjaragliðnunina. Við munum byggja brú sem bætir hag almennings og bætir hag þeirra sem bágast standa í samfélaginu. Ég kalla eftir því að á okkur sé farið að hlusta. Ég kalla eftir því að verkin verði virt að þeim verðleikum sem þau eiga skilið. Ég kalla eftir því að þurfa ekki að standa hér ár eftir ár eftir ár og tönnlast á því sama án þess að finna raunverulega að á okkur sé hlustað og utan um okkur tekið og við fáum þann stuðning og það afl sem við þurfum á að halda til að geta hrint í framkvæmd öllum þeim góðu málum sem við erum með á stefnuskrá Flokks fólksins.

Ég þarf svo sem ekki að vera að lesa mikið meira upp úr þessu frumvarpi nema ég get bara aðeins sagt þetta: Við höfum leitað álits lögspekinga vegna þess að við höfum áður látið reyna á ofbeldislöggjöf löggjafans þar sem greiðslur almannatrygginga voru á sínum tíma skertar til ellilífeyrisþega vegna launatekna þeirra úr lífeyrissjóði og þá höfðu stjórnvöld aldeilis misstigið sig í skerðingarheimildum sínum og fellt úr gildi — óvart reyndar, það var ekki viljandi sem þeir ætluðu að hætta að skerða vegna lífeyristeknanna. Það var ekki viljandi. Það var óvart, auðvitað vilja þeir halda áfram að skerða og skerða meira, sjálfsagt hátt í 100 milljarðar á ári sem er verið að skerða hjá einstaklingum vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Við fórum sem sagt í mál fyrir hönd eldra fólks. Við unnum málið. Það var lítið um það rætt en þessir sömu eldri borgarar okkar fengu með vöxtum greitt úr lífeyrissjóði vel á sjöunda milljarð króna fyrir þessa tvo mánuði þar sem í rauninni var verið að endurgreiða þeim ofteknar skerðingar, skerðingar sem áttu í rauninni enga stoð í lögum.

En við erum svo sem ekki óvön því hér á hinu háa Alþingi að sjá hvernig er gengið um gildandi löggjöf af mikilli léttúð og þeim finnst það bara allt í lagi, ráðamönnum þessarar þjóðar finnst bara allt í lagi að brjóta löggjöfina á sama tíma og þeir koma hér og setja okkur reglurnar sem við eigum að fylgja. Ég segi: Við þurfum að tryggja það, þetta er einföld breyting á málinu. Það er eingöngu verið að tryggja að það verði aldrei geðþóttaákvörðun eins eða neins að hækka hinar árlegu greiðslur almannatryggingaþega um það sem fylgir vísitölu neysluverðs nema sú vísitala sé hærri en vísitala launa. Við verðum að tryggja að það verði einfaldlega farið að gildandi lögum í landinu. Eins og ég sagði áðan og segi aftur: Það er í rauninni nöturlegt að þurfa að vera að tryggja löggjöf sem þegar er fyrir í landinu. Lögin eru skýr. Það var settur gaffall í löggjöfina til að tryggja það, 1997 minnir mig, þannig að það kæmi aldrei til álita hvort ætti að miða við launa- eða neysluvísitölu þegar verið væri að hækka hinar árlegu greiðslur til almannatrygginga.

Núna er bara spurningin hvort við þurfum virkilega að fara að stíga fram eina ferðina enn. Við erum til í það. Það vantar ekkert upp á það. Við erum hér fyrir fólkið okkar, við erum hér af hug og hjarta. Við erum styrkt af fólkinu í landinu sem greiðir stórfé til stjórnmálaflokka. Við hikum ekki við að nota það fjármagn til að hjálpa fólkinu okkar að leita réttar síns og ef við þurfum að gera það, ef það á ekki einu sinni að reyna að tryggja að ekki sé hægt að svindla eina ferðina enn á þeim sem síst skyldi, þá förum við einfaldlega í mál. Það hefur verið undirbúið meira að segja um allnokkurt skeið en hefur legið svo sem frekari í láginni núna um tíma. Við ætlum að vita og athuga hvort okkur getur ekki orðið eitthvað ágengt með þetta frumvarp, en ef ekki þá látum við reyna á það fyrir dómstólum hvort það sé endalaust heimilt að ganga um á skítugum skónum og brjóta lögin hægri vinstri án nokkurra afleiðinga. Við í Flokki fólksins segjum: Nei takk, hingað og ekki lengra.