almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, um að fjárhæðir fylgi launavísitölu. Það kveður á um að fjárhæðir almannatrygginga og frítekjumark, svo og greiðslur skv. 42. gr., skulu breytast árlega í samræmi við launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Samkvæmt 62. gr. laga um almannatryggingar, áður 69. gr., skulu greiðslur almannatrygginga, meðlagsgreiðslur skv. 42. gr. laganna og fjárhæð tekjutryggingar skv. 28. gr. breytast árlega í samræmi við fjárlög og skal ákvörðun þeirra taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Í þessu ákvæði í dag kemur fram að þær skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög. Markmiðið með þessari reglu var að tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar myndu njóta hækkunar á ráðstöfunartekjum í sama hlutfalli og almenningur.
Hér er um mikið réttlætismál að ræða enda eru engin rök til annars en að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái sömu launauppbót, þ.e. að kaupmáttur þeirra skerðist ekki þegar launavísitalan hækkar. Greiðslur fylgi launavísitölu þegar hún hækkar. Hér er um algjört grundvallarmál að ræða og mikið réttlætismál. Má vísa til 76. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir, með leyfi forseta:
„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika.“
Þessi aðstoð þarf að miða við ákveðna vísitölu þegar við erum að tala um framfærslu og þá er réttast að miða við launavísitölu, þó þannig að greiðslur hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Þegar núgildandi regla, sem er 62. gr. laga um almannatryggingar, var lögsett þá sagði þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, eftirfarandi í þingræðu, með leyfi forseta:
„Viðmiðunin á að vera við laun en engu að síður er settur annar lás sem á að gæta þess ef svo vildi til, sem við skulum vona að verði ekki á næstu árum, að launin hækki minna en verðlag eins og hefur nú komið fyrir.“
Framkvæmdin hefur akkúrat verið þannig með örorkulífeyri og ellilífeyri almannatrygginga að þessir hópar, öryrkjar og ellilífeyrisþegar, hafa orðið fyrir stórkostlegri kjararýrnun vegna þess að ellilífeyrir og örorkulífeyrir hefur ekki hækkað í samræmi við launaþróun. Það er þetta sem verður að stoppa.
Eins og kemur fram í umsögn Öryrkjabandalags Íslands við frumvarp þetta á fyrri þingum þá er kjaragliðnun almannatrygginga þannig að í desember 2022 vantaði 71.000 kr. á mánuði upp á hámarksgreiðslur örorkulífeyris ef miðað er við almenna launaþróun frá árinu 2007, þ.e. kjaragliðnunin frá 2007–2022, sem eru 15 ár, er upp á 71.000 kr. á mánuði. Það er kjaragliðnunin. Það sýnir að öryrki eða ellilífeyrisþegi hefur í dag sem nemur 71.000 kr. minna til ráðstöfunar en hann hefði haft árið 2007. Þetta er mjög há tala og það er mjög mikilvægt að þetta komi hér fram og flutningsmaður, hv. þm. Inga Sæland, benti á þetta.
Það hefur reynt á þetta fyrir dómstólum. Þar sem Alþingi fer með fjárstjórnarvaldið skv. 41. gr. stjórnarskrárinnar og núverandi löggjöf felur Alþingi að ákvarða hækkanir bóta hafa dómstólar talið það falla utan hlutverks síns að dæma um hvort rétt hafi verið staðið að hækkun bóta skv. 62. gr. laga um almannatryggingar. Það féll dómur sem tók á þessu, dómur Hæstaréttar í máli nr. 233/2016, þ.e. að það er einfaldlega hægt að brjóta núgildandi 62. gr. þegar fjárlög eru samþykkt, þegar Alþingi Íslendinga tryggir það ekki með fjárstjórnarvaldi sínu að fara að lögum hvað varðar 62. gr. laga um almannatryggingar. Þetta frumvarp er hugsað til þess að það verði tryggður réttur til þess að fjárhæð almannatrygginga, þ.e. örorku- og ellilífeyrir og frítekjumörk, svo og greiðslur meðlags skv. 42. gr., breytist árlega í samræmi við launavísitölu. Þessir hópar eru eins og annað fólk, þeir þurfa líka að sjá sér farborða og gera það með vísan til 76. gr. stjórnarskrárinnar, um rétt til aðstoðar. Þetta eru mannréttindi. Við erum að tala um inntak mannréttinda sem lýtur að því að geta séð sér farborða. Það er tryggt í stjórnarskránni.
Þetta er eitt af grundvallarmálum Flokks fólksins sem er gríðarlega mikilvægt að nái fram að ganga svo að þessi kjaragliðnun verði stöðvuð sem núna hefur átt sér stað undanfarna áratugi.
Hér má líka benda á að þetta er ekki einsdæmi, tenging bóta við vísitölu er þekkt í öðrum lögum. Það má benda á að fjárhæðir skaðabóta breytast mánaðarlega í samræmi við lánskjaravísitölu. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að örorku- og ellilífeyrir verði tengdur við vísitölu vegna þess að við búum við verðbólgu og laun fara sífellt hækkandi og þá erum við með launavísitöluna sem hér á við og svo taka skaðabætur mið af lánskjaravísitölu.
Það er ekki hægt að koma svona fram við þennan hóp, tekjulægsta hóp þjóðarinnar, sem eru öryrkjar og aldraðir ef við horfum á fjárhæðir almannatrygginga. Það er bara ekki hægt að þessi réttur sé brotinn á þeim og fjárhæðir almannatrygginga séu ekki í samræmi við launavísitölu.
Ég vonast til þess að þetta mál fái góða umfjöllun í nefnd og komi til 2. umræðu nú í haust. Mér finnst það bara eðlileg krafa.