155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

húsaleigulög.

55. mál
[18:30]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp Flokks fólksins um breytingu á húsaleigulögum, um réttarstöðu leigjenda íbúðarhúsnæðis og leigubremsu. Mjög þarft mál en því miður ríkisstjórninni ekki að skapi. Hvers vegna skyldi þetta mál vera nauðsynlegt? Jú, fólk á leigumarkaði er í skelfilegri stöðu í dag. Svo fáránlega sem það hljómar þá er verið að henda fólki út úr leiguhúsnæði, heilu fjölskyldunum til að leigja annarri fjölskyldu. Hugsum þetta aðeins. Fjölskylda er með húsaleigu og það er sett hækkun á húsaleiguna, jafnvel það mikil hækkun að það er vitað mál að viðkomandi ræður ekki við hækkunina, hún er komin yfir útborguð laun hans. Hvað getur viðkomandi gert? Hann stendur ekki undir leigunni og verður þar af leiðandi að fara úr húsnæðinu og inn á frumskógarmarkað þar sem er barist eiginlega dauðabaráttu um hverja einustu íbúð sem er til leigu. En leigan er of há.

Það er verið að þjarma að húsnæðismarkaðnum í heild sinni. Það er verið að reyna með öllum ráðum að frysta húsnæðismarkaðinn en ætti einmitt að vera alveg þveröfugt. Það ætti að stórauka byggingarframkvæmdir. Ríkisstjórnin ætti að vera löngu búin að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni t.d. Það ætti raunar líka að vera búið að tryggja að það sé þak á vöxtum. Við getum haft einfaldlega þak og það myndu sennilega flestir sætta sig við 3–3,5%. Þá getum við einbeitt okkur að því að uppfylla þörf á húsnæðismarkaði fyrir íbúðir. 3–3,5% er einmitt ávöxtunarkrafa lífeyrissjóðanna. Ég hugsa að það væri mjög ásættanlegt í þeirri stöðu sem við erum í í dag þegar við erum komin með yfir 10% vexti. Ekki getur þetta fólk leitað til félagsþjónustunnar og óskað eftir neyðaraðstoð því að þar er langur biðlisti. Hvert á þetta fólk að fara? Það sem fær ekki húsnæði til leigu á í engin hús að venda. Á götuna, í tjald, í hjólhýsi í Laugardalnum? Nei, ekki hjólhýsi í Laugardalnum því fólki var úthýst þaðan og sett upp í gryfju einhvers staðar upp í iðnaðarhverfi svo enginn geti séð þeirra ömurlegu aðstæður. Ég verð bara að segja alveg eins og er að það er okkur til háborinnar skammar að við skulum vera komin á þann stað að fólk þurfi að gista í bifreiðum eða í tjaldi eða hreinlega á götunni og að fólki sé bent á að fara í gistiskýli. Við erum rík þjóð og við eigum alls ekki að vera á þessum stað.

Það væri hægt að byggja fjölda íbúða og sérstaklega fyrir fátækt fólk en því miður, ríkisstjórnin er ekki á þeirri braut. Það er komið svona fram við þá sem eru að hokra og reyna að lifa af í almannatryggingakerfinu, fólk sem er með 300.000 kr. útborgaðar og er að reyna að leigja og það er kannski með, eins og við höfum séð dæmi um, 260.000 kr. leigu sem allt í einu hækkar upp í 320.000 kr. og viðkomandi fær ekki nema 300.000 kr. útborgað, fær að vísu húsaleigubætur en það bara dugir ekki til. Ef það er sæmileg íbúð til leigu þá er bara fjöldi manns að bítast um hana eins og hefur komið fram og það eru ekki nógu margir íbúðir á markaðnum og þær sem eru á markaðnum eru mjög dýrar. En hvað er ríkisstjórnin að gera? Ekkert. Hún sér ekki, hún heyrir ekki, skilur ekki og talar ekki við þetta fólk. Á sama tíma höfum við líka séð hvernig leigumarkaðurinn er og hvað er verið að leigja þar. Það er verið að leigja kolageymslur, iðnaðarhúsnæði, algerlega óíbúðarhæfar íbúðir. Það myndi vera rekið upp harmakvein ef okkur dytti í hug að hafa húsdýr í mörgu af því húsnæði sem við höfum séð að er til leigu, það væri talið dýraníð. En það er allt í lagi að leigja fólki þetta og fólki með börn. Ekkert vandamál hjá þessari ríkisstjórn eða þeim aðilum sem eiga að hafa eftirlit með húsnæðinu.

Við verðum og eigum að sjá til þess að þeir verst settu hafi húsnæði á Íslandi, það er númer eitt, tvö og þrjú. Við þurfum húsnæði. Við lifum ekki öðruvísi af, það gengur ekki upp. Á sama tíma er endalaust verið að hækka leigu hjá fólki. Fólk sem fær útborgað 300.000 kr. og er svo heppið að fá kannski leiguíbúð á 305.000 kr. getur fengið, eins og ég sagði áðan, leigubætur, en síðan koma skerðingarnar. Það er alls konar skerðingar í kerfinu sem ná út fyrir almannatryggingakerfið, eins og áður hefur komið fram, og alveg inn í félagsbótakerfið. Sérstaka leiguuppbótin skerðist grimmilega og það er búið að búa til gildrur úti um allt til þess eins að láta þá sem verst hafa það og geta ekki einu sinni varið sig og vita einu sinni ekki af því að þeir lenda í þessum gildrum, lenda í þeim vandræðum að þeir missa húsnæði sitt.

Þessi ríkisstjórn er ekki að tala við fólkið þarna úti, fólkið sem virkilega þarf á húsnæði að halda. En því miður, með þessa ríkisstjórn við völd þá sjáum við ekki fram á neinar breytingar. Við verðum að fá breytingar því okkur ber skylda til að sjá til þess að fólk hafi húsnæði. Við verðum að sjá til þess að fólk þurfi ekki að vera á götunni með börn, að fólk með börn þurfi ekki að vera í bifreiðum eða á tjaldsvæðum. Fólk er örvæntingarfullt nú þegar. Lausnin liggur í því að samþykkja þetta frumvarp og drífa í því að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að ríkisstjórnin hysji upp um sig buxurnar, sem er auðvitað alveg vonlaust, hún er með allt á hælunum og verður áfram. Því miður, eina leiðin virðist vera að þessi ríkisstjórn fari frá þannig að eitthvað sé gert í málunum.

Við erum líka að valda fólki gríðarlegu tjóni, við erum með fólk, aldrað fólk að reyna að lifa af með sitt húsnæði. Við erum eiginlega að pína fólk í þessu ófremdarástandi, það fólk sem er vel undir fátæktarmörkum og er að reyna að hanga í sínu eigin húsnæði og það hefur ekki einu sinni efni á viðgerðum, það er í leku húsnæði eða í óíbúðarhæfu húsnæði. Það getur enga björg sér veitt. Og ekki getur þetta fólk selt í því ástandi sem nú er vegna þess að hvert á það að fara? Inn á leigumarkað?

Það er kominn tími til að það komi hér ríkisstjórn til valda sem sér til þess að allir hafi húsnæði. Við vitum að á sínum tíma þá útrýmdum við braggahverfunum hér í Reykjavík, Höfðabakka og fleiri stöðum, með því að byggja Breiðholtið. Það var bara gert átak, heilu hverfin byggð fyrir fólk á viðráðanlegu verði. Í dag? Nei. Það eru bara þéttingarreitir. Það á að byggja allt á þéttingarreitum, þar sem lóðin er dýr, íbúðirnar það dýrar að það hefur enginn efni á þeim nema í mesta lagi ríkt fólk og leigufélög sem kaupa allt upp til þess að leigja á rándýru verði. Fyrir hverja? Jú, þá sem hafa efni á því. En hvað um hina? Hvernig eiga aðrir að ná þessu, t.d. öryrkjar? Hvernig í ósköpunum eiga þeir að fara inn á almennan leigumarkað? Það er gjörsamlega vonlaust. Hvernig í ósköpunum eiga þeir þá að sækja um hjá Brynju eða öðrum leigufélögum? Það er allt uppselt, biðlistar, það er meira að segja að ég held hætt að taka á biðlista.

Þetta sýnir ástandið svart á hvítu og sýnir hversu nauðsynlegt það er að taka á þessum málum. Því fyrr, því betra en því miður, núverandi ríkisstjórn er enga lausn með. Hún eykur bara á vandann.