húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessu frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, sem lýtur að réttarstöðu leigjenda íbúðarhúsnæðis og leigubremsu. Frumvarpið er þrjár greinar og gildistökuákvæði. Það er, eins og kemur fram í frumvarpinu, algjört grundvallaratriði í öllum siðmenntuðum samfélögum að fólk hafi þak yfir höfuðið. Réttur til viðunandi lífskjara, þar á meðal húsnæðis og batnandi lífsskilyrða, eru grundvallarmannréttindi sem njóta verndar í þremur alþjóðlegum sáttmálum sem Ísland er aðili að; félagsmálasáttmála Evrópu, alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þessir þrír alþjóðasáttmálar kveða á um þessi grundvallarréttindi, að allir eigi rétt á þaki yfir höfuðið, eigi rétt til húsnæðis.
Á undanförnum árum hafa gríðarlegar verðhækkanir átt sér stað á húsnæðismarkaði á Íslandi. Í upphafi þings var verðbólga mæld 6% en án húsnæðisliðarins er hún 3,6%, þ.e. 2,4% af verðbólgunni er vegna hækkunar á húsnæði. Vissulega lækkaði hún aðeins niður fyrir 6% frá því að þingið hóf störf núna í haust en það er alveg klárt mál að það hefur húsnæðisliðurinn ekki gert. Ég vil vekja athygli á því að Hagstofan breytti í vor útreikningi á húsnæðisliðnum. Fyrra viðmiðið tók tillit til þess að við værum með mjög léleg gögn um húsaleigumarkaðinn. En núna eru þau víst orðin aðeins betri þannig að núna er farið að taka tillit til þess sem er kallað ígildi húsaleigu. Það er verið að byggja á gögnum er lúta að húsaleigu. Það má stórlega efast um það að gögnin séu nægilega góð þar sem fyrri gögn byggðu á því að ekki væri tekið tillit til húsaleigu. Af hverju? Af því að það voru lélegar upplýsingar sem komu úr þeim gögnum og það breytist ekki á skömmum tíma.
Eins og kemur fram í frumvarpinu voru leigjendur á árunum 2005–2007 innan við 18% íbúa landsins. Þeim fjölgaði talsvert eftir hrun og svo hefur þeim fækkað aftur að einhverju leyti. Núna er hlutfall leigjenda um 16–18%. Á Íslandi hefur svokölluð séreignarstefna lengst af verið ríkjandi og ekki síst undir merkjum Sjálfstæðisflokksins sem trúir á séreignarstefnuna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það virðist vera annað í gangi núna í þessari ríkisstjórn og það er alveg með hreinum ólíkindum að núverandi ríkisstjórn, sem hefur setið í sjö ár, skuli ekki hafa tekið á þessum vanda. Okkur hefur fjölgað alveg ótrúlega mikið frá 2017 og ég held að það sé um 20% íbúafjölgun. Ofan á það bætast hælisleitendur. Í hittiðfyrra tókum við á móti 4.500 umsóknum og í fyrra 4.200 umsóknum og ofan á það bætist í þriðja lagi að 1.200 íbúðir hurfu af íbúðamarkaðnum vegna hamfaranna á Reykjanesi, 1.200 íbúðir sem hurfu af markaðnum í Grindavík. En ríkið ætlar hins vegar bara að styrkja byggingu 1.000 íbúða. Svo er annað líka, það hefur verið lóðaskortur hér í landinu sem hefur leitt til þess að íbúðaverð hefur hækkað. Vissulega er vert að taka fram að það hefur verið erfitt að koma stofnfjárframlagi ríkisins í vinnu við að byggja húsnæði vegna skorts á lóðum. Það má halda því fram með góðum rökum að sveitarfélögin fái auknar tekjur — þau gera það, það eru ekki bara góð rök heldur er það bara staðreynd að hækkandi fasteignaverð leiðir til aukinna tekna hjá sveitarfélögum. Hvernig gerir það það? Jú, fasteignaverð hækkar og þá hækkar fasteignamat sem er grundvöllur fasteignagjalda. Þannig hafa tekjur sveitarfélaganna aukist vegna húsnæðisskorts.
Við hér á Alþingi verðum að fara að taka á þessum lóðaskorti af alvöru, sjá til þess að sveitarfélögin útvegi og komi með nægilega mikið magn af lóðum svo að einstaklingar geti byggt sér húsnæði til að búa í. Það segir sig sjálft að þegar okkur fjölgar jafn mikið og raun ber vitni þá þarf að byggja meira af húsnæði. Það myndu allir gera í öllum samfélögum. Nema hér á Íslandi, hér fækkar húsbyggingum milli ára. Það var töluverð fækkun milli ára, það var minna byggt af húsnæði í ár en í fyrra. Ég er ekki með prósentutöluna á hreinu, ég heyrði hana í fjárlaganefnd í vikunni, en það verður minna byggt í ár en í fyrra þrátt fyrir íbúafjölgunina. Það segir okkur það að það er eitthvað að kerfinu. Kerfið er ekki rétt, svo mikið er víst.
Hv. þm. Inga Sæland fór áðan yfir kannanir, fjórar kannanir sem mig langar að drepa á hér. Á húsnæðisþingi í október 2018 voru kynntar niðurstöður viðhorfskönnunar meðal leigjenda sem sýndu að einungis 8% þeirra vildu í raun vera á leigumarkaði og 86% þeirra vildu búa í eigin húsnæði, koma sér þaki yfir höfuðið þannig að fólk er að leigja af illri nauðsyn. Það hefur ekki efni á því að kaupa eigið húsnæði, það hefur ekki fjármagnið til þess, á ekki eigið fé til íbúðarkaupa. Niðurstöður viðhorfskönnunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar meðal leigjenda 2021 voru á svipaða leið, en þá sögðust 88% svarenda frekar vilja búa í eigin húsnæði og 12% frekar vilja vera á leigumarkaði. Það eru um 90% af þeim sem leigja sem vilja vera í eigin húsnæði, en hafa ekki efni á því.
Varðandi leiguverðið, og það er það sem þetta frumvarp er að taka á, þá er þessi húsnæðiskostnaður mjög íþyngjandi, hann er svo stór hluti af ráðstöfunartekjum. Þetta frumvarp er viðleitni til þess að koma í veg fyrir það að einstaklingar séu að eyða megninu af sínum ráðstöfunartekjum í leiguhúsnæði. Húsnæðiskostnaður telst íþyngjandi þegar heildarkostnaður húsnæðis nemur meira en 40% af ráðstöfunartekjum heimilisins, þ.e. um 4 kr. af hverjum 10 kr. sem einstaklingar eða heimili aflar sér fara í húsnæðiskostnað. Samkvæmt niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands búa 27% heimila í leiguhúsnæði við íþyngjandi húsnæðiskostnað, næstum 30%. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Öryrkjabandalagið sögðust 12% öryrkja á leigumarkaði greiða meira en 75% útborgaðra ráðstöfunartekna sinna í húsnæði en 25% greiða á milli 51% og 75% í húsnæðiskostnað. Þetta frumvarp ætlar að reyna að taka á þessu málum.
Ef ég fer aðeins ofan í frumvarpið þá er það þannig að við leiguskipti, þegar kemur nýr leigutaki, er lagt til að sama gildi og hefur verið í núgildandi lögum varðandi leigu á íbúðarhúsnæði að þegar nýr leigjandi kemur inn búi hann við sama rétt og ef sami leigjandi hefði verið áfram, varðandi húsnæðisverðið. Leigufjárhæð sem áður gilti sé sanngjörn og verður sá sem vefengir það að sýna fram á annað ef það á að fara að hækka leiguna.
Í 2. gr. er fjallað um að það sé heimilt að leigusali geti farið fram á hækkun leigufjárhæðar sem er að hámarki í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs á tímabilinu, þ.e. verði aldrei meiri en verðbólga.
Að lokum er bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið er á um að frysta leiguverð, húsnæðisleiguverð, til ársloka 2026 vegna þess ófremdarástands sem er á húsnæðisleigumarkaði og á húsnæðismarkaði þar sem við búum við 9% stýrivexti og aðaldrifkraftur verðbólgunnar er húsnæðisliðurinn. Við verðum að taka á framboðinu. Það verður að auka framboð á húsnæði svo við getum náð niður verðbólgunni vegna þess að verð á húsnæði er ekki að fara að lækka þegar skortur er á húsnæði. Það mun halda áfram að hækka.