155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

almannatryggingar.

57. mál
[18:57]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Eins og allir vita erum við í Flokki fólksins algerlega ódrepandi í því að berjast fyrir bættum kjörum þeirra sem höllustum fæti standa. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, um skerðingarlausa atvinnuþátttöku öryrkja. Það er svo sannarlega ekki í fyrsta skipti sem við erum hér með breytingartillögur á almannatryggingalöggjöfinni til hagsbóta fyrir þá sem hana þurfa að nota. Með mér á þessu frumvarpi er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins.

1. gr. frumvarpsins orðast svo:

„Á eftir 30. gr. laganna kemur ný grein, 30. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Tilraun til starfa.

Örorkulífeyrisþegum og hlutaörorkulífeyrisþegum er heimilt að afla sér atvinnutekna í tvö ár án þess að þær teljist til tekna samkvæmt þessum kafla. Réttur til að starfa án skerðinga vegna atvinnutekna stofnast við tilkynningu einstaklings til Tryggingastofnunar um að hann hyggist nýta þá heimild eða á síðari dagsetningu sem viðkomandi tilgreinir sérstaklega í tilkynningu sinni. Um tilkynningu fer skv. 55. gr.

Séu heildartekjur einstaklings sem aflar sér tekna, skv. 1. mgr., hærri en meðallaun í viðkomandi starfsstétt skal telja mismuninn til tekna skv. 30. gr. Notast skal við nýjustu upplýsingar frá Hagstofu Íslands við mat á meðallaunum starfsstétta hverju sinni.

Óheimilt er að afturkalla útgefið samþætt sérfræðimat á grundvelli starfsgetu örorkulífeyrisþega á því tímabili þegar hann nýtir sér heimild til að afla sér atvinnutekna án skerðinga skv. 1. mgr. Við gerð nýs samþætts sérfræðimats skal ekki litið til starfsgetu einstaklings á því tímabili sem hann aflar sér tekna skv. 1. mgr.

Hafi umsækjandi áður nýtt sér heimild til að afla atvinnutekna án skerðinga getur hann sótt aftur um þá heimild átta árum eftir að tveggja ára tímabili skv. 1. mgr. lauk.“

2. gr. er að lög þessi öðlist gildi 1. janúar 2026.

Frumvarpið var áður lagt fram á 150., 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi, 91. mál, og er nú lagt fram enn að nýju, sem sagt í sjötta sinn, þannig að eins og allir hljóta að sjá gefumst við ekki upp í Flokki fólksins á að fylgja eftir okkar góðum málum. Þeim er sópað út af borðinu ítrekað en þá komum við bara með þau aftur og aftur þangað til þið eruð búin að koma okkur í þær álnir að vera við stjórnvölinn hér þannig að við getum fylgt þeim eftir og látið þau ná fram að ganga.

Á fyrri þingum bárust umsagnir um málið frá Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp. Umsagnaraðilar lýstu almennt yfir ánægju með frumvarpið. Því legg ég fram frumvarpið að nýju efnislega óbreytt en gerðar hafa verið lagatæknilegar breytingar með tilliti til breytinga á bæði lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð sem voru samþykktar á 154. löggjafarþingi og munu að óbreyttu taka gildi haustið 2025. Hér er sem sagt verið að miða við hið nýja almannatryggingafrumvarp, starfsgetumatið frábæra, hið illa ígrundaða meira að segja.

Ákvæði gildandi laga um almannatryggingar eru torskilin og gjarnan reynist erfitt fyrir hinn almenna borgara að átta sig á framkvæmd laganna. Þeir öryrkjar sem fá greiðslu örorkulífeyris vita þó að þeir mega búast við ýmiss konar skerðingum afli þeir sér atvinnutekna. Þá er örorkumat gjarnan veitt tímabundið og margir óttast skerðingu bóta ef heilsu þeirra hrakar eftir að þeir hefja vinnu. Öryrkjar eiga ekki að þurfa að hafa áhyggjur af framtíðarhorfum sínum ef þeir gera tilraun til að hefja atvinnu á ný. Þvert á móti ættu þeir að eiga von á betri lífskjörum. Því er lagt til að öryrkjum verði veitt sérstök heimild sem þeir geta nýtt sér þegar þeir vilja reyna að hefja störf á ný eða auka starfsgetu sína. Fari svo að sú tilraun heppnist ekki þarf öryrki ekki að óttast frekari skerðingar lífeyrisgreiðslna eða endurmat örorku á grundvelli þeirrar tilraunar.

Svipað úrræði skilaði góðum árangri í Svíþjóð. Þar sneru um 30% þátttakenda aftur út á vinnumarkaðinn eftir tilraun til starfa. Þegar sænska ríkisstjórnin ákvað að reyna fyrir sér með þessari leið, að gefa öryrkjum kost á að reyna að bjarga sér sjálfir eins og kostur var, skiluðu um 32% þeirra sem reyndu fyrir sér á vinnumarkaði sér ekki aftur inn á bótakerfið. Hugsið ykkur ávinninginn. Eftir hverju erum við að bíða? Af hverju eru allir í handbremsu hér allan ársins hring, ár eftir ár, kjörtímabil eftir kjörtímabil? Það er augljóst öllum sem skoða málið að það er raunverulegur ábati, bæði fyrir samfélagið í heild sinni, öryrkjann og ríkissjóð. Þetta er vinningur fyrir okkur öll. Það er allt að vinna, engu að tapa.

Það sem við erum að gera með því að gefa öryrkjum kost á því að reyna fyrir sér á vinnumarkaði, ef þeir treysta sér til, er einfaldlega að við erum að reyna að gefa þeim kost á að hjálpa sér sjálf. Þetta eru þeir sem eru skattlagðir í sinni fátækt. Þetta eru þeir sem eru að fá útborgaðar ríflega 300.000 kr. á mánuði og samt eru þeir skattaðir. Þetta eru þeir sem þurfa að borga þessar 300.000 kr. á mánuði í húsaleigu og það er það sem þau fá útborgað. Við skulum átta okkur á því að ríkissjóður fær skatttekjur af atvinnutekjum öryrkjans ef hann reynir fyrir sér á vinnumarkaði. Því koma þessa skatttekjur að einhverju leyti á móti auknum greiðslum almannatrygginga. En við erum ekki að tala í rauninni um auknar greiðslur almannatrygginga. Þær verða bara algjörlega þær sömu. Eini munurinn er sá að við erum að gefa einstaklingi sem er að fá greitt frá almannatryggingum kost á því að fara út í samfélagið, taka þátt í því ef hann mögulega treystir sér til og afla sér tekna. Um leið greiðir hann skatta í ríkissjóð þannig að hann er í rauninni að greiða stóran hluta af því sem hann er að fá úr almannatryggingakerfinu sjálfur, þetta er svona hringrásarkerfi þar sem við munum öll standa uppi sem sigurvegarar ef þessi ríkisstjórn vaknar einhvern tímann af sínum hrikalega þyrnirósarsvefni og sér í rauninni hversu frábært þetta frumvarp hefur verið öll þessi ár.

Við skulum líka átta okkur á því að andleg heilsa batnar gjarnan ef fólk getur tekið virkan þátt í samfélaginu. Því er þessi tilhögun til þess fallin að bæta andlega líðan öryrkja og fjölskyldna þeirra. Við vitum líka að það eru um 22.300 einstaklingar sem eru öryrkjar á Íslandi í dag. Þetta er há tala. Við vitum líka að mikið af nýgengi örorku og margir sem eru inni á kerfinu og eru ungir að árum lenda inni á þessu kerfi vegna andlegra erfiðleika, vegna geðrænna sjúkdóma, margir vegna neyslu fíkniefna. Þeir hafa verið að glíma við lífið og eiga erfitt uppdráttar og enda þarna. Þetta er sá staður sem enginn vill í rauninni enda á. Þá er það í okkar valdi að reyna að opna faðminn og draga þetta fólk til okkar út í samfélagið, gefa því tækifæri á því að hjálpa sér sjálft, gefa því tækifæri á því að vera innan um fólk, öðlast í rauninni þennan félagslega stuðning sem við fáum hvert af öðru þegar við lokum okkur ekki af inni alein heima. Svartnætti og þunglyndi einkennir margt af þessu fólki, fólkinu sem við viljum hjálpa til sjálfshjálpar, fólkinu sem við viljum gefa tækifæri á því að taka þátt í samfélaginu með okkur.

Er ekki kominn tími til að tengja, hæstv. ríkisstjórn? Er ekki kominn tími til að taka utan um fólkið okkar og hjálpa því til sjálfshjálpar? Ég veit ekki betur en að það hafi verið stefna Sjálfstæðisflokksins að hvetja alla til að taka þátt, að hvetja alla til að leggja sitt af mörkum. Í rauninni hélt ég að það væri þeirra vilji að aðstoða fólk nákvæmlega í því að hjálpa sér sjálft, en því miður í þau sjö ár sem ég hef verið á Alþingi Íslendinga og nú í sjötta sinn að mæla fyrir þessu frumvarpi, og hefði gert það strax á fyrsta vetri ef ég hefði verið búin að fá þau gögn sem við öðluðumst þegar við vorum að leita okkur upplýsinga um það hvernig hlutirnir gengju fyrir sig í löndunum í kringum okkur — þar fengum við bæði gögn frá Svíþjóð og einnig frá Hollandi sem sýndu það algjörlega svart á hvítu hvers lags gríðarlegur ábati það er fyrir samfélagið í heild sinni og fyrir þennan viðkvæma hóp, fátækasta fólkið í samfélaginu, að við göngum áfram og gefum þeim kost á að hjálpa sér sjálf.

Svo tekinn sé af allur vafi um það þá er það algjörlega galið þegar einhver kemur fram og segir: Ætlið þið að láta öryrkjana vinna á fullum greiðslum frá almannatryggingum? Er það það sem þið eruð að tala um? Nei, það er ekki það sem við erum að tala um því eftir ákveðna upphæð þá færð þú ekki krónu greidda frá Tryggingastofnun. Ef þú ert kominn yfir meðallaun, eins og við erum að tryggja í þessu frumvarpi, í þeirri starfsstétt sem þú í rauninni treystir þér til að fara og reyna fyrir þér í þá taka skerðingarnar við. Það er ekki þannig að þú fáir að hafa milljón á mánuði og sért samt að fá greiðslur frá Tryggingastofnun. Það liggur algjörlega í hlutarins eðli. Þetta frumvarp er eingöngu til að reyna að hjálpa fólki til sjálfshjálpar og reyna að draga fólk út úr fátæktinni sem hefur verið múruð utan um það af þessari ríkisstjórn og mörgum öðrum þar á undan, reyna að berja í þessa kjaragliðnun, reyna að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Um það snýst þetta frumvarp. Þetta er manngæskufrumvarp eins og öll önnur frumvörp Flokks fólksins sem við erum að leggja hér fram og erum að kalla eftir að fá stuðning við til þess að hjálpa þeim sem þurfa á hjálp okkar að halda.