félagsleg aðstoð.
Herra forseti. Enn erum við að mæla hér fyrir frumvörpum sem eru gerð til þess að aðstoða fólk sem þarf á aðstoð okkar að halda. Í þetta sinn er þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, um lífeyrisþega búsetta erlendis. Með mér á þessu máli er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins ásamt hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni.
„1. gr.
Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. skal greiða lífeyrisþega sem er búsettur erlendis heimilisuppbót, nema sýnt sé fram á að hann njóti sambærilegs stuðnings í því ríki sem hann flytur til.
2. gr.
Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. skal greiða lífeyrisþega sem er búsettur erlendis sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu, nema sýnt sé fram á að hann njóti sambærilegs stuðnings í því ríki sem hann flytur til.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025.“
Hvað erum við að biðja um með þessari breytingu á lögum um félagslega aðstoð nema að tryggja að einstaklingarnir okkar, fólkið okkar sem hefur í rauninni þurft að kjósa með fótunum og flýja land vegna fátæktar og getur í rauninni ekki náð endum saman á Íslandi, haldi áfram að njóta allra sinna réttinda hér nema í raun og veru að þau séu búin að koma sér yfir á kerfið í því landi sem þau hafa flutt til?
Frumvarp þetta var áður lagt fram á 154. löggjafarþingi en það náði ekki fram að ganga og nú legg ég það fram að nýju óbreytt. Ein umsögn barst um frumvarpið á 154. löggjafarþingi frá ÖBÍ réttindasamtökum. Í umsögninni var tekið undir markmið frumvarpsins en jafnframt lögð áhersla á mikilvægi þess að það verði ekki lögð sú skylda á lífeyrisþega að sanna að þeir njóti ekki sambærilegs stuðnings erlendis frá. Rétt er að benda á í því samhengi að orðalag 1. og 2. gr. frumvarpsins er afdráttarlaust um að sönnunarbyrðin fyrir því hvort lífeyrisþegi njóti sambærilegs stuðnings erlendis frá hvíli á stjórnvöldum en ekki á lífeyrisþeganum sjálfum.
Þegar lífeyrisþegi flytur frá Íslandi til annars ríkis getur það haft áhrif á lífeyrisréttindi hans og önnur félagsleg réttindi. Búseta á Íslandi er skilyrði fyrir tryggingavernd, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um almannatryggingar, en frá þeirri meginreglu eru þó undantekningar, svo sem ef annað leiðir af milliríkjasamningum. Ísland er aðili að nokkrum slíkum milliríkjasamningum og ber þar helst að nefna EES-samninginn, samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, en á grundvelli 29. gr. þess samnings hefur verið innleidd reglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa á milli þessara landa, reglugerð (EB) nr. 883/2004. Vegna þess geta Íslendingar flust til annarra EES-ríkja án þess að missa rétt til töku á elli- eða örorkulífeyri.
Öðru máli gegnir um félagsleg réttindi sem falla ekki undir lögin um almannatryggingar, jafnvel þótt viðkomandi réttindaflokkar séu beintengdir lífeyri almannatrygginga. Búseta á Íslandi er ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir þeim réttindum sem fjallað er um í lögum um félagslega aðstoð, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Heimilisuppbót og sérstaka framfærsluuppbótin falla því niður ef lífeyrisþegi flytur til útlanda, þótt hann fái áfram greiddan örorku- eða ellilífeyri frá íslenska ríkinu. Heimilisuppbót er aðeins greidd til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega og sérstaka framfærsluuppbótin greiðist eingöngu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Örorkulífeyrisþegi sem engar aðrar tekjur hefur getur átt von á því að 37% tekjuskerðing sé af honum tekin ef hann flytur til annars EES-ríkis. Hann getur misst 37% af framfærslu sinni vegna þessa ósamræmis í löggjöfinni þar sem í rauninni lögin um félagslega aðstoð heyra ekki undir lögin um almannatryggingar.
Undanfarinn áratug hafa stjórnvöld sífellt farið þá leið að auka vægi heimilisuppbótar og sérstöku framfærsluuppbótarinnar með þeim afleiðingum að réttindaflokkarnir eru órjúfanlegur þáttur af nauðsynlegri framfærslu lífeyrisþega. Falli réttindi niður vegna flutnings til annars EES-ríkis felst í því mismunun á grundvelli búsetu. Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um félagslega aðstoð sem miða að því að tryggja að þeir lífeyrisþegar sem kjósa að búa erlendis verði ekki fyrir tekjuskerðingu vegna þess að heimilisuppbót eða sérstök framfærsluuppbót falli niður.
Um einstakar greinar frumvarpsins ætla ég ekki að ræða frekar hér en ég segi ekkert annað en þetta: Er ekki nógu mikið á þessa einstaklinga lagt, sem eru í rauninni margir hverjir með heimþrá þar sem þeir búa núna en treysta sér ekki til að taka þátt í þessu samfélagi okurs þar sem þau geta ekki með nokkru lifandi móti náð endum saman? Á sama tíma er ekki samhæfing á heimilisuppbótinni og framfærsluuppbótinni við almannatryggingakerfið og nú, eins og kemur hér fram, er vægi heimilisuppbótar orðið í rauninni mun meiri þáttur inni í greiðslum frá Tryggingastofnun heldur en áður var þannig að það að missa heimilisuppbótina og sérstöku framfærsluuppbótina er gjörsamlega að sliga þetta fólk hvert sem það fer. Þannig að núna þegar þau eru í rauninni hvergi að fá neins staðar greiðslur nema frá íslenska ríkinu þá skilyrðislaust viljum við í Flokki fólksins fella þessa löggjöf sem er hér í lögunum um félagslega aðstoð beint undir almannatryggingalöggjöfina þannig að þar verði samfella og þessir einstaklingar okkar missi í engu af heimilisuppbótinni sinni eða hinum sérstaka lífeyrisstuðningi.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Ég vona að það verði virkilega tekið mark á því og skoðað alvarlega hversu mikilvægt það er fyrir þessa einstaklinga sem hafa kosið að flýja land vegna fátæktar að fá að halda sínum réttindum skilyrðislaust.