bætur vegna tvísköttunar lífeyrisgreiðslna.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um bætur vegna tvísköttunar lífeyrisgreiðslna. Meðflutningsmenn á málinu eru Sjálfstæðismennirnir og hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Jón Gunnarsson og Njáll Trausti Friðbertsson.
Eins og rakið er í greinargerð málsins gengu árið 1988 í gildi breytingar á tekjuskattslögum sem höfðu þá m.a. að meginmarkmiði að skattbyrði héldist sem næst óbreytt. Þær fólu það m.a. í sér að til einföldunar var frádráttarbærni iðgjalda til lífeyrissjóða felld niður. Persónuafsláttur á lægri skatthlutföll átti síðan að skila skattborgurum sömu niðurstöðu og frádráttarreglurnar höfðu áður gert. Þessar breytingar ollu nokkurri óánægju og árið 1991 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu Guðmundar H. Garðarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um skattalega meðferð á lífeyrissparnaði sem sneri m.a. að þessu atriði. Árið 1994 lögðu síðan þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig Pétursdóttir og Vilhjálmur Egilsson, fram tillögu til þingsályktunar um afnám tvísköttunar á lífeyrisgreiðslum. Árið 1994 náðist loks samkomulag um að breyta þessu fyrirkomulagi, fyrst í tengslum við fjárlagagerð fyrir árið 1995. Tekjuskattur á inngreiðslur í lífeyrissjóð var síðan með öllu afnuminn 1. júlí 1997 en árin 1995 og 1996 var hluti inngreiðslna þó frádráttarbær frá tekjuskattsstofni. Þegar staðgreiðslu á skatti var komið á, eins og ég hef þegar farið yfir, var tekjuskattur lagður á þær tekjur sem launþegi greiddi sem iðgjald í lífeyrissjóð og lífeyririnn var síðan skattlagður aftur við útgreiðslu. Því er hægt að færa fyrir því rök að þarna hafi tvísköttun hafist á lífeyri. Kerfi sem sneri að tvísköttun tekna var vissulega lagfært í skrefum árin 1995–1997. Eftir stendur óuppgert óréttlæti sem þeir einstaklingar búa við sem greiddu iðgjöld á þessum árum og greiða síðan tekjuskatt á ný við útgreiðslu.
Virðulegi forseti. Flutningsmenn telja það vera réttlætismál að borgarar greiði ekki tvöfaldan tekjuskatt af sömu tekjum. Þar sem liggur fyrir að það er útkoman vegna kerfis sem er frá þessum árum sem ég hef þegar lýst telja flutningsmenn sanngjarnt að umræddum einstaklingum sé bætt oftakan. Því er lagt til að fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að hefja vinnu við frumvarp með þetta að markmiði.
Að lokum vonast ég til að fá gagnlegar ábendingar og athugasemdir við málið við meðferð þess í þinginu og legg til að málið gangi að lokinni 1. umræðu til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.