155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Störf þingsins.

[15:02]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Ég fjallaði hér í gær um fórnarkostnaðinn af því að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi, fórnarkostnaðinn fyrir fólkið í landinu af því að sitja uppi með ríkisstjórnina enn einn veturinn og enn eitt fjárlagaárið með tilheyrandi óstjórn í efnahagsmálum, velferðarmálum, samgöngumálum og svona mætti lengi telja. Við í Samfylkingunni höfum vakið athygli á þeirri útreið sem verkafólk á eftirlaunaaldri fær í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, hvernig höggvið er í sjóði erfiðisvinnufólks með þeim afleiðingum að lífeyrisréttindi hjá verkamannasjóðunum verða skert strax í byrjun næsta árs, þ.e. ef ríkisstjórnin fær sínu framgengt. Þetta er kannski það sem VG kallar að vera í samstarfi á félagslegum forsendum.

En nú vil ég tala um annan stóran hóp fólks sem fær að finna fyrir því í þessum fjárlögum. Það er fólk sem glímir ýmist við heyrnarskerðingu eða sjónskerðingu, fólk sem er blint eða heyrnarlaust, börn og fullorðnir sem reiða sig á opinbera þjónustu vegna þessa. Sjónstöð, sú stofnun sem sinnir endurhæfingu og þjónusta við blint og sjónskert fólk, er sett undir hnífinn, verður haldið í fjársvelti á næsta ári þrátt fyrir að notendum hafi fjölgað um mörg hundruð á örfáum árum um leið og stöðugildum hefur fækkað. Þetta er staðan. Svo er það Heyrnar- og talmeinastöð. Útreiðin sem sú stofnun fær er slík að forstjóri stofnunarinnar dregur þá ályktun að það sé stefna núverandi ríkisstjórnar að tryggja endalok opinberrar heyrnarþjónustu á Íslandi. Ég ætla að segja það aftur: Að það sé stefna þessarar ríkisstjórnar að tryggja endalok opinberrar heyrnarþjónustu á Íslandi.

Virðulegi forseti. Hvað ætlar ríkisstjórn Íslands að eyðileggja mikið áður en hún hrökklast frá? Þjóðin er búin að fá nóg af þessu. Ríkisstjórnarflokkarnir eru búnir að fá nóg hver af öðrum. Er ekki kominn tími til að hætta þessu, hætta þessum skemmdarverkum gagnvart velferðarkerfinu okkar, (Forseti hringir.) gagnvart innviðum landsins, gagnvart efnahagslegum stöðugleika og verðmætasköpun á Íslandi? (Forseti hringir.) Er ekki bara best að pakka saman, boða til kosninga og rétta keflið áfram? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)