Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fyrir utan það að veita mér andardráttinn er ég þakklátur foreldrum mínum fyrir það einkum og sér í lagi hafa haldið mér að tónlistarnámi og við systkinin nutum löggjafar sem Gylfi Þ. Gíslason á stærstan heiðurinn af og sett var fyrir 60 árum, um að ríki og sveitarfélög skyldu til jafns standa straum af tónlistarnámi ásamt því að fjölskyldurnar í landinu legðu til hóflegt framlag. Nú er það svo að tónlistarmenntun á undanförnum árum hefur orðið erfiðari og erfiðari að komast í. Dæmi frá því núna í haust: Af 109 umsóknum um nám í tónlistarskóla FÍH var einungis hægt að taka við 29 nemendum, sirka 30%. Fyrir alla þá sem glíma við einhvers konar, við skulum segja lesvanda eins og er nú orðinn æði útbreiddur, þá vitum við ósköp vel að nám í tónlist og kvikmyndum hefur reynst gríðarlega gjöfult og mikilvægt. Við erum sennilega sterkari á vettvangi hinna skapandi greina heldur en flestar aðrar þjóðir miðað við höfðatölu, allt frá dögum Íslendingasagna og til vorra daga. Það að skerða möguleika fólks til að finna sína fjöl í skapandi greinum, tónlist eða öðru er fjandsamlegt í þjóðfélagi sem er jafn vel sett fjárhagslega og við. Það er alveg ljóst að skipting ábyrgðar milli sveitarfélaga og ríkis hefur mislukkast að þessu leyti. Við þurfum að endurskoða það. Við þurfum að taka það upp að kannski ráða sveitarfélögin hreinlega ekki við það sem þeim var falið að gera og við þurfum að mynda starfshóp um það að koma þessu í lag aftur, því að af fáu hreykjum við okkur jafn oft og mikið og af því hvað við eigum nú mikið af góðu tónlistarfólki og listafólki á vettvangi skapandi greina. Megi svo áfram verða.