Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vil nýta tíma minn hér í dag til þess að ræða lækkun á framlagi ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða. Þetta framlag kom til framkvæmda árið 2007 sem hluti af kjarasamningi og það var ekkert sem benti til þess á þeim tíma að um tímabundið framlag væri að ræða. Nú hefur þessi ríkisstjórn, sem er komin í líknandi meðferð, tekið ákvörðun um að eðlilegt og rétt sé að skerða þetta framlag sem hingað til hefur gert það að verkum að ekki hefur þurft að skerða lífeyrisréttindi hjá þeim sjóðum sem bera þyngstu örorkubyrðina. Og hvaða sjóðir eru það, virðulegi forseti? Jú, það eru sjóðirnir sem verkafólk hefur greitt í, fólkið sem hefur haft lægstu launin í gegnum starfsævina og á þar af leiðandi minnstu lífeyrisréttindin. Í mínum huga er það óskiljanlegt hvers vegna ríkisstjórnin velur að fara þessa leið til að fjármagna aðra þætti fjárlagafrumvarpsins sem Vinstri græn hampa og skreyta sig með.
Íslenskir lífeyrissjóðir bera mismunandi örorkubyrði og að sjálfsögðu er ekki rétt að þeir sjóðir sem hafa lægstu örorkubyrðina fái framlag úr ríkissjóði. Hins vegar er staðan þannig hjá mörgum sjóðum verkafólks að rúmlega fjórðungur greiðslna sjóðanna fer í að greiða örorkulífeyri. Á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í gær kom m.a. fram að Festa lífeyrissjóður gæti þurft að skerða réttindi um allt að 7% og Gildi lífeyrissjóður um tæp 6%. Er þetta það sem við viljum, virðulegi forseti, að seilst sé í vasa fátækasta fólksins í landinu til að fjármagna hallarekstur ríkissjóðs? Hvað segir svona forgangsröðun okkur? Þessi forgangsröðun segir mér alla vega að þessi ríkisstjórn hefur ekki getu til að forgangsraða í þágu fólksins í landinu og þess vegna á hún að fara frá.