Störf þingsins.
Frú forseti. Hérna var varnarræða hv. þingmanns sem áttar sig á því að ríkisstjórnin er komin að endimörkum. Á landsfundi um síðustu helgi gaf einn stjórnarflokkurinn, VG, það út að þau treystu sér einfaldlega ekki til að klára kjörtímabilið í þessari ríkisstjórn. Það er upplausn í samstarfinu og það hefur blasað við öllum í marga mánuði. Formaður Sjálfstæðisflokksins brást eðlilega við þessum yfirlýsingum og sagði fráleitt að einn af flokkunum, sá minnsti, ákvæði upp á sitt einsdæmi að stytta kjörtímabilið og sagði að lengd samstarfsins myndi eingöngu helgast af því hvort þau treystu sér til að leiða þau mál til lykta sem þau teldu mikilvæg. Hæstv. forsætisráðherra þarf hins vegar ekkert að velkjast í vafa um hvort það sé mögulegt. VG hefur einfaldlega rifið í handbremsuna varðandi stærstu mál Sjálfstæðisflokksins; útlendingamál, frekari orkuöflun og það er hægt að telja ýmislegt annað.
Þessu áttar hv. þm. Óli Björn Kárason sig auðvitað á og talar skýrt í Morgunblaðinu í morgun. Þar segir hann hingað og ekki lengra, að langlundargeðið sé þrotið og jafnframt að hann sjái eftir því að hafa ekki gengið enn lengra en að segja af sér starfi þingflokksformanns í kjölfar þess að þáverandi matvælaráðherra og núverandi formaður VG stöðvaði hvalveiðar í óþökk margra stjórnarliða; ákvörðun sem hún var snupruð fyrir af fyrrverandi umboðsmanni Alþingis. Miðað við orð hv. þingmanns Sjálfstæðisflokksins er bara mjög erfitt að sjá fyrir sér að hann geti stutt áfram þetta stjórnarsamstarf og það á augljóslega við um fleiri þingmenn stjórnarliðsins sem maður rekst á hér á göngunum.
Frú forseti. Við getum einfaldlega ekki búið við þrjár ólíkar ríkisstjórnir í landinu á sama tíma. Nú verða þessir flokkar þrír einfaldlega að pakka saman, slíta samstarfinu og boða til kosninga áður en þeir valda enn þá meira tjóni fyrir þjóðina.