Störf þingsins.
Frú forseti. Enn syrtir í álinn fyrir Reykjavíkurflugvelli. Í morgun sagði Vísir fréttir af því að hæstv. innviðaráðherra og forveri hans í því starfi væru áfram og ætluðu að vera samverkamenn í því að ýta flugvellinum í burtu, því það er óhjákvæmileg afleiðing af nálgun þessara innviðaráðherra í samstarfi við borgina gagnvart flugvellinum. Hæstv. innviðaráðherra hefur farið fram á að Isavia afhendi land og rífi niður flugvallargirðingu umhverfis Reykjavíkurflugvöll á tilteknum stað. Því er reyndar haldið fram af hálfu forverans að þetta sé bara gert í trausti þess að það skerði ekki rekstraröryggi eða flugöryggi Reykjavíkurflugvallar. Það liggur þegar fyrir að það gerir hvort tveggja. En þegar öryggismálanefnd FÍA skilaði sínum niðurstöðum varðandi öryggisþáttinn á sínum tíma, þá sama dag eða daginn eftir gaf forverinn leyfi til að ræsa gröfurnar og byrja grafa, vegna þess að það er ekkert að marka slíkar yfirlýsingar. Þetta miðar allt að því að þrengja að flugvellinum og kemur í beinu framhaldi af Hvassahraunsskýrslunni sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, formaður fjárlaganefndar, bendir á að hafi fyrst og fremst verið áminning um að það væri ekki tímabært að fara að byggja. Þingmaðurinn gengur lengra og segir að það þurfi að verjast árásunum, eins og hann orðar það, á Reykjavíkurflugvöll með fullum hnefa. Gott og vel, en hvernig ætla menn að gera það? Mun Sjálfstæðisflokkurinn hreyfa sig eitthvað í þessu máli eða eru þetta bara einhverjar yfirlýsingar út í loftið? Hingað og ekki lengra, skrifaði Óli Björn Kárason, hv. þingmaður. Verður látið á það reyna í þessu máli eða þurfum við að bíða eftir því að menn (Forseti hringir.) tali í sig kjark til að segja hingað og ekki lengra og framkvæmi í samræmi við það?