Störf þingsins.
Frú forseti. Það er skiljanlegt að fólk sé reitt og jafnvel brjálað yfir vaxtahækkun bankanna á verðtryggðu lánunum á dögunum. Þetta er enn eitt vaxtahöggið fyrir fjölskyldurnar, kjaftshögg sem kostar fólk tugi þúsunda á mánuði. Fólki finnst ranglátt að á sama tíma og það flýr svimandi háar afborganir óverðtryggðra lána sé því strax refsað með græðgishækkun bankanna á verðtryggðu lánunum. Það er einfaldlega hvergi skjól að fá. Þetta er eins og að flýja óveður inn í hús og þar mæta þér bara pústrar og hnefahögg og almenn leiðindi frá húseigendum. Þetta er súrt og ósanngjarnt og við eigum þetta ekki skilið.
Valkostir íslensku millistéttarinnar eru að vera með húsnæðislán sem hækkar um milljónir á ári þrátt fyrir reglulegar afborganir eða að vera með lán þar sem afborganir hækka um 200.000–300.000 á mánuði. Hengingaról hávaxtanna íslensku herðist að hálsi okkar og það eina sem við getum gert er að velja á milli þess hvort liturinn á ólinni er blár eða rauður, allra náðarsamlegast. Einu lánamöguleikar okkar þegar kemur að húsnæði eru í raun afarkostir á fráleitum kjörum í okkar stærstu og mestu fjárfestingu á lífsleiðinni.
Auðvitað eigum við Íslendingar skilið vaxtakjör sem tíðkast í nágrannalöndunum. Þar veit fólk þegar það skrifar undir lánasamning hvernig greiðslur þróast út lánstímann, með hóflegum vöxtum. Fyrir vaxtapínda Íslendinga hljómar þetta eins og einhver langsótt útópía, nánast eins og skálduð ævintýraveröld með glimmeri. En nei, þetta er veruleiki og kjör sem í raun og veru bjóðast í öðrum löndum.
Allur gamli fjórflokkurinn boðar núna þá sýn að við eigum áfram að vera föst í krónuhagkerfinu. Meira að segja nýr formaður Samfylkingarinnar er sleginn sömu blindu og allir formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í gegnum tíðina. Öll trúa því að í þeim búi einhver hagfræðilegur töframáttur sem geti galdrað fram stöðugt hagkerfi með íslensku krónuna sem gjaldmiðil. Þetta hefur engum tekist og tilraunin verður engu skárri þótt hún sé framkvæmd af jafnaðarmanni. Ekki einu sinni þeir geta látið vatn renna upp í mót.