155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að fara örstutt yfir stöðu mála varðandi Grindavík nú þegar komnir eru 11 mánuðir frá því að bæjarfélagið var rýmt. Fyrst vil ég vekja athygli þingheims á því að bæjarfélagið er enn lokað 11 mánuðum síðar. Fyrir mér eru rökin fyrir því að heilt bæjarfélag sé enn harðlæst mjög óljós og efast ég um að það standist lög. En margt hefur verið gert og fyrir það ber að þakka. Þar munar mest um tilkomu Þórkötlu sem hefur keypt upp mikinn meiri hluta íbúðarhúsnæðis. Sú ráðstöfun hefur gefið fólki svör í óvissunni og gert því kleift að bjarga sér sjálft eða velja sér sjálft nýjan samastað fyrir fjölskylduna.

Enn er þó hópur fjölskyldna í óvissu um hvort hann fái lausn sinna mála og með því þurfum við að fylgjast hér á þinginu. Verkefnið er fjölbreytt og viðamikið. Tel ég að tilkoma Grindavíkurnefndarinnar hafi skipt miklu máli um að ná yfirsýn yfir þær áskoranir sem standa út af og að mörg mál séu að komast í farveg. Grindavík hefur allt til að bera til að vera áfram eitt öflugasta atvinnusvæði landsins. Fyrirtækin hafi því miður ekki fengið sömu svör og flestir íbúarnir og við því þarf að bregðast. Þar tel ég nokkur atriði skipta mestu máli. Númer eitt er að gera þeim fyrirtækjum sem það geta mögulegt að bjarga sér sjálf með því að opna bæinn. Þau fyrirtæki sem búa við ónothæft húsnæði á skemmdum, lóðum eða eru með heft aðgengi þarf að greiða út svo að þau geti haldið starfseminni áfram á nýjum stað. Endurskoða þarf rekstrarstöðvunarstyrkinn svo að hann hvetji fyrirtækin til að halda áfram að skapa verðmæti. Og einnig þarf að gera fyrirtækjum kleift að tryggja eignir sínar, nýjar eignir og lausafé, svo starfsemi geti haldið áfram.

Með þessum aðgerðum drögum við úr kostnaði ríkissjóðs af náttúruhamförunum og fyrirtækin í Grindavík hefja aftur verðmætasköpun fyrir land og þjóð.