155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Störf þingsins.

[15:35]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Á dagskrá ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var áhugaverður þáttur sem kallast Torgið. Á Torginu er fjallað um málefni sem rædd eru af kappi á kaffistofum landsins og að þessu sinni var talað um áfengi, menninguna í kringum það, neyslu, sölu og áhrif þess á fólk og samfélag. Í þættinum voru reifuð ýmis sjónarmið, rétt eins og á kaffistofum landsins, en sjónarmið afleiddra áhrifa áfengisneyslu og aukið aðgengi fékk töluvert rými og eðlilega, enda hverfist umræðan í samfélaginu um hana.

Einn angi þessarar umræðu lýtur að frelsi til að geta keypt sér áfengi hvar sem er og hvenær sem er. Mat heilbrigðisstarfsfólks er að neysla áfengis auki líkurnar á ýmsum krabbameinum, það ógni lýðheilsu og hafi ýmsar afleiddar afleiðingar gagnvart þeim sem eru í návígi við þann einstakling sem neytir áfengis. Aukið aðgengi að áfengi mun því ekki stuðla að bættri lýðheilsu eða minnka álag á heilbrigðiskerfið.

Áhyggjur af ungu fólki í þessu samhengi eru greinilegar. Hér á Alþingi var vorið 2021 samþykkt þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Tveimur árum áður var heilbrigðisstefna til ársins 2030 samþykkt sem þingsályktun og fyrir okkur liggur nú að ræða tillögu hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030. Þar er m.a. kveðið á um neytendavernd til viðkvæmra hópa.

Ég get ekki séð, virðulegi forseti, að boðaðar breytingar á áfengislöggjöfinni sem finna má á þingmálaskrá hæstv. dómsmálaráðherra og komu til umræðu á Torginu í gærkvöldi taki mið af öllum þessum stefnum. Ákvörðun um aukið aðgengi að áfengi verður að taka á breiðari forsendum en á grundvelli markaðslögmálsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)