Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, fyrir að vekja máls á þessu samfélagsmeini og sömuleiðis hæstv. ráðherra fyrir að standa fyrir svörum í dag. Hvað viljum við uppræta hérna? Er einhver vandi til staðar, því að hvers vegna erum við að ræða vinnumansal þegar það á sér varla stað í íslensku réttarkerfi? Þetta segi ég vegna þess að það hefur á blaði ekki orðið mansalsbrot í heil 15 ár. Það var síðast sakfellt fyrir mansalsbrot í héraðsdómi, sem var síðan staðfest fyrir Evrópudómstólnum, árið 2009. Ég vil minna á það að í fyrra sneri Landsréttur við dómi héraðsdóms sem hafði fallið árið 2021, þar sem konu var gefið að sök að hafa flutt barnunga einstaklinga, lítil börn, hingað til lands í því skyni að láta þau stunda þrælkunarvinnu. Þessu var snúið við. Dómaframkvæmd á sviði mansalsmála er þar af leiðandi gífurlega fátækleg og þegar við stöndum frammi fyrir því þá eigum við sem löggjafi að átta okkur á vandanum, að hann liggur hér. Hann liggur í óskýrri löggjöf sem nær ekki að taka utan um þann vanda sem augljóslega grasserar. Þetta helst beint í hendur við það að teymi ríkislögreglustjóra sem sér um að rannsaka og síðan ákæra fyrir mansalsbrot hefur aðeins þrjá einstaklinga að geyma og þyrfti á sex til viðbótar að halda svo vel væri.
Forseti. Það er búið að gefa út áætlanir, stofna samstarfsvettvanga og búa til stefnurnar, en þegar þær eru ekki fjármagnaðar og þegar lögreglan fær ekki þau tól og tæki í hendurnar og þann mannskap sem hún þarf á að halda til að sækja þetta til saka er þetta allt saman gagnslaust. (Forseti hringir.) Við gerum kröfu um íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði. Fjármögnum lögregluna. Við ætlum ekki að bíða í 15 ár eftir næsta dómi.