155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Starfsmannaleigur og vinnumansal.

[15:51]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Frú forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu og ég þakka líka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrir að reifa hér málið allvel og fara yfir áherslur ríkisstjórnarinnar í þessu brýna og mikilvæga máli. Það liggur alveg fyrir eftir þriðju úttekt GRETA, sem er eftirlitsnefnd Evrópuráðsins, að það eru enn þá tækifæri til úrbóta í þessum málum þó svo að því sé haldið til haga að á undanförnum árum hefur ýmislegt áunnist. Það hafa verið gerðar mikilvægar lagabreytingar og aðilar vinnumarkaðarins hafa komið að því með stjórnvöldum, með samkomulagi. Hvort sem um er að ræða vinnueftirlit eða vinnustaðaskírteini þá er ýmislegt sem hægt er að gera betur.

Við skulum hafa það alveg á hreinu að mansal, hvers konar mansal sem er um að ræða, er gríðarlega alvarlegur glæpur, svívirðilegur glæpur sem gerir lítið úr mannhelgi manneskjunnar, treður á mannréttindum manneskjunnar og það er eiginlega hálfóhugnanlegt að hugsa til þess hvernig samtök eða óprúttnir aðilar eru að gera veika stöðu fólks sér að féþúfu.

En það eru leiðir til úrbóta, eins og ég kom inn á áðan, og það eru atriði sem snúa að því að eftirlitið sé markvissara, að það beinist að því þar sem þess er þörf. Við þurfum að taka til skoðunar ábendingar um að keðjuábyrgð sé ekki alveg nægilega markviss. Við þurfum að tryggja til að mynda að fyrirtæki hafi hvata og verði að skilja að þau þurfi að upplýsa ef þau verða þess áskynja að eitthvað misjafnt er að eiga sér stað eða að þessi glæpur (Forseti hringir.) sé að eiga sér stað. Það eru ýmis atriði sem hægt er að fara í og ég treysti því að ríkisstjórnin (Forseti hringir.) sé að vinna að því.