155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Starfsmannaleigur og vinnumansal.

[15:56]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Að venju vil ég þakka málshefjanda, hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, kærlega fyrir að setja þetta mál á dagskrá hér í þinginu og ráðherra fyrir upplýsingarnar. Það var auðvitað sláandi að horfa á Kveik. Það sem kom mér mest á óvart og kannski sat í mér var að ég hélt að við værum komin lengra. Mér varð hugsað til þess þegar ég kom nálægt þessum málaflokki á sviði vinnuverndar í kringum árið 2018. Því er fagnaðarefni að heyra frá hæstv. ráðherra hvað er þó búið að gerast í málaflokknum og auðvitað var líka fagnaðarefni að sjá aðila vinnumarkaðarins taka höndum saman í Hörpu fljótlega eftir að þessi þáttur kom fram og stíga fast niður. Auðvitað hefur þetta áhrif fyrst og fremst á þá einstaklinga sem í þessu lenda en þetta hefur líka áhrif á og rýrir traust fólks á íslenskan vinnumarkað. Skussarnir eru að komast upp með það að brjóta á saklausu fólki, sem hefur áhrif á aðra og skekkir samkeppnisstöðu. En mansal er veruleiki sem við okkur blasir og það er því miður þannig í löndunum í kringum okkur. Þess vegna getum við líka hallað okkur að alþjóðlegri samvinnu til þess að reyna að stemma stigu við mansali.

Jú, það er margt til úrbóta eins og hér hefur komið fram og þingmenn hafa rætt og hæstv. ráðherra. En ég held að við þurfum að horfast í augu við þá siðferðilegu spurningu hvort við sem samfélag séum að gera nóg. Vinnumansal er að einhverju leyti að eiga sér stað undir nefinu eða augunum á einhverjum sem er að taka þátt í því og horfir mögulega í hina áttina. Það er það sem ég hef líka verulegar áhyggjur af, virðulegi forseti. Það hefur verið kallað eftir samstarfi og ég skil það vel, en ég held að við í stjórnmálunum þurfum að stíga upp og líka við í samfélaginu í heild.