Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Forseti. Íslensk löggjöf þarf að vera skýr og afdráttarlaus þegar kemur að vinnumansali. Það verður að tryggja að fyrirtæki geti aldrei hagnast á brotastarfsemi heldur beri af henni mikinn fjárhagslegan skaða. Þetta er algjört lykilatriði. En við verðum líka að efla eftirlitið með vinnumarkaðnum. Ef okkur er alvara með að koma í veg fyrir vinnumansal þá þurfum við að tryggja mannskap og setja fjármagn í að samræma, þétta samstarfið og vinnustaðaeftirlit úti um allt land. Verkalýðshreyfingin hefur lengi kallað eftir samstarfi við alla þá aðila sem málið varðar, við Vinnumálastofnun, Vinnueftirlitið, ríkisskattstjóra auk lögreglunnar, og þessu samstarfi hefur verið komið á að einhverju leyti. En stóri vandinn er að þessar mikilvægu eftirlitsstofnanir eru vanfjármagnaðar. Þetta á einnig við um lögregluna sem skortir mannskap og fjármagn til að sinna þessu verkefni á fullnægjandi hátt.
Forseti. Það fer ekki saman að ætla að taka á mansalsmálum en á sama tíma skeri ríkisstjórnin niður hjá þeim eftirlits- og löggæslustofnunum sem geta beitt viðurlögum til að takast á við þessi mál. Stéttarfélögin hafa ekki slík úrræði til að beita og það er ekki hægt að ætlast til að þau geti tæklað þennan vanda án viðeigandi stuðnings. Það á ekki að líðast að vernd og aðstoð við þolendur sé ófullnægjandi en þetta er staðan í dag. Árangur í þessum málaflokki veltur algjörlega á því að við tryggjum að þolendur nauðungarvinnu og mansals missi ekki dvalarleyfi og þeim verði ekki efnahagslega meint af því að kæra og vitna gegn meintum brotamönnum. Einnig að þeim verði veitt vernd gegn þeim brotamönnum ásamt því að vera tryggð nauðsynleg félagsleg úrræði.
Forseti. Við fjölluðum ítarlega um vinnumansal í velferðarnefnd fyrir sex árum síðan. Þá var skýrt varað við þessari þróun og þá komu tillögur að nauðsynlegum aðgerðum. Stjórnvöld hafi verið meðvituð um þessi mál lengi og vitað hvað þarf að gera. Það er ótrúlega óábyrgt af þessari ríkisstjórn að hafa ekki sett raunverulega „rísorsa“, að hafa ekki sett alvörupeninga, fjármagn, og tryggt mönnun (Forseti hringir.) til að koma í veg fyrir mansal. En þetta er staðan í dag og það er sorglegt.