155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Starfsmannaleigur og vinnumansal.

[16:05]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þetta er mikilvæg umræða sem við eigum hér í dag. Líkt og öðrum þá var mér algerlega ofboðið og misboðið að horfa á Kveiksþáttinn fyrir skömmu þar sem fjallað var um vinnumansal á Íslandi og ég vil segja: Skömm sé þeim fyrirtækjum sem koma svona fram við starfsfólk. Þetta á auðvitað ekki að líðast og það þarf að taka fast á svona brotastarfsemi. Mér fannst líka ömurlegt að sjá og heyra í þessum þætti að það séu sveitarfélög, sem eru opinberir aðilar, sem eru að skipta við starfsmannaleigur sem koma svona fram við starfsfólkið sitt. Ég tek undir að það er mikilvægt að löggjöf um keðjuábyrgð sé virt og sé virk. Ég er almennt ekki sérlega refsiglöð kona en hér finnst mér nauðsynlegt að stigið sé fastar til jarðar.

Aðilar vinnumarkaðarins, SA og ASÍ, héldu góða ráðstefnu um vinnumansal og þar var m.a. gott erindi þar sem fjallað var um hvernig væri verið að taka á málum á hinum Norðurlöndunum, þ.e. til að málin gangi alla leið fyrir dómstólum. Þar heyrðist mér og sýnist að við ættum að horfa til þess sem Finnar eru að gera. Þeir virðast vera að ná árangri. En hér er augljóst að það verður að gera betur. Það ættu allir sem verða þess áskynja að verið sé að brjóta á réttindum launafólks að gera viðvart um það og við sem samfélag (Forseti hringir.) eigum að koma hlutum þannig fyrir að við tökum utan um það fólk sem brotið er á.