Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Herra forseti. Það var í janúar 2018 sem ég var frummælandi í sérstakri umræðu við þáverandi félags- og jafnréttisráðherra, Ásmund Einar Daðason. Það var einmitt eftir Kveiksþátt um svik á vinnumarkaði. Ekkert hefur lagast síðan þá. Ástandið hefur þvert á móti versnað. Það er glæpur að ræna fólk launum og réttindum. Ódýrara vinnuaflinu er ætlað að auka gróða fyrirtækjanna og bæta samkeppnisstöðu þeirra. Fórnarlömbin eru hrædd við að tjá sig og eru í raun þau einu sem bera skaða af glæpnum, jafnvel þó að upp um hann komist. Oft vill starfsfólkið ekki tjá sig, treystir ekki yfirvöldum og er líka hrætt um fólkið sitt í heimalandinu. Einstaklingurinn sem brotið er á lendir í vandræðum ef hann segir frá, er tryggingalaus og missir vinnuna.
Sá hagvöxtur og sú velferð sem við Íslendingar búum við hefði ekki orðið til nema fyrir innflutt vinnuafl. Það er óþolandi að velferð okkar sé byggð að hluta til á þjófnaði þar sem fyrirtæki flytja inn fólk og stela af því laununum, að það sé látið viðgangast að hagvöxtur á Íslandi sé borinn að hluta til uppi með svikum og svindli.
Í umræðunni í janúar 2018 sagði hæstv. ráðherra frá frumvörpum sem von væri á inn í þingið um aukið eftirlit á vinnumarkaði, starfsmannaleigur og upplýsingaflæði til að koma í veg fyrir að brotastarfsemi þrífist hér á landi. Frumvörp sem þá höfðu verið í meðferð þriggja ríkisstjórna. Það er skemmst frá því að segja, forseti, að í sjö ára tíð ríkisstjórnarsamstarfsins sem nú er að niðurlotum komið hefur ekki verið komið í veg fyrir brotastarfsemina. Afleiðingin er verri kjör fyrir allt of marga, óheilbrigður vinnumarkaður og verra samfélag.