Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Virðulegi forseti. Mansalsbrot eru ein erfiðustu mál til rannsóknar hjá lögreglu sem til eru, mun erfiðari en fíkniefnabrot. Þetta eru einir alvarlegustu glæpir sem til eru og refsingarnar eru eftir því, allt að 12 ára fangelsi.
Mig langar í seinni ræðu minni að fara aðeins aftur yfir úttektarskýrslu GRETA um stöðu mansalsmála á Íslandi og vek athygli á því og ítreka það að hér er um alþjóðlega löggjöf að ræða í grunninn, bæði hegningarlög og varðandi eftirfylgni. Við lútum eftirliti eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali. Ég skora á hæstv. ráðherra að fara eftir þeim leiðbeiningum og þeim tillögum sem GRETA hefur komið með þar sem við getum bætt úr.
Sjálfur vann ég í eftirliti varðandi peningaþvætti árið 2006, þriðju skýrslu FATF-nefndarinnar um aðgerðir gegn peningaþvætti, og ég hefði getað veðjað aleigunni á að við myndum lenda á gráa listanum og í þeirri niðurlægingu sem við lentum í um tíu árum seinna, vegna þess að eftirfylgnin var ekki rétt, við gerðum ekki neitt.
Það sem við þurfum að gera stendur skýrum stöfum í skýrslu GRETA. Þar kemur m.a. fram að það þarf að tryggja að heimildir og úrræði vinnueftirlits standi undir því og leggi sitt af mörkum til að koma í veg fyrir og upplýsa mansalsmál á vinnumarkaði. Þetta heyrir beint undir hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra. Það verður að liggja algerlega hreint fyrir að Vinnueftirlitið hafi nægileg úrræði, nægilegar heimildir, lagaheimildir, og nægilegt fjármagn til að sinna eftirlitsskyldu á vinnumarkaði hvað þetta varðar. Ef ekki þá erum við ekki að gera þetta rétt og þá munum við lenda í skammarkróknum í þessum málum eins og við lentum í í peningaþvættinu. Ég óttast að við gerum það. Það er gríðarleg þekking sem verður til við eftirlit þessarar nefndar og mikið að læra ef við förum rétt að og vinnum rétt að þessu.
Einnig segir GRETA að það skorti verklagsreglur til að skilgreina hlutverk og ábyrgð viðkomandi fagaðila. Að skilgreina hlutverk og ábyrgð, það er eitthvað sem vantar algjörlega alls staðar í samfélaginu. Við heyrum hugtakið axla ábyrgð en þá þarf að skilgreina hver ber ábyrgð og ábyrgðin (Forseti hringir.) á þessum málaflokki í dag er hjá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Að lokum vil ég minna á að GRETA tekur sérstaklega á (Forseti hringir.) varðandi mansal á börnum. Ég skora á hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að skoða það líka.
(Forseti (ÁsF): Ég minni ræðumanninn á að hér eiga allir sama ræðutíma.)