Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka aftur fyrir mjög góða umræðu hér í dag og nota tækifærið og rýna aðeins í yfirlýsingu ASÍ og SA frá því á fundinum góða um daginn þar sem segir, með leyfi forseta:
„Íslenskur vinnumarkaður er að mestu leyti vel skipulagður enda hafa aðilar vinnumarkaðarins viðhaft mikið og virkt samtal um allt það sem lýtur að sameiginlegum hagsmunum. Stjórnvöld verða svo eðli málsins samkvæmt einnig að axla ábyrgð á samstarfinu sem þar með verður þríhliða sem er sérlega mikilvægt hvað varðar baráttuna gegn brotastarfsemi og markmiðið um að hér á landi þrífist ekki vinnumansal.“ — Þríhliða.
Ég nefndi í ræðu minni fyrr í umræðunni að ég tel að þetta samstarf þurfi ekki bara að vera þríhliða. Ég held að fjórði aðilinn í því þurfi að vera samfélagið sjálft, pólitíkin, við að halda þessum hlutum á lofti, en umfram allt að við séum með opin augu hvað varðar möguleikana á því að stemma stigu við vinnumansali á Íslandi.
Já, það er þörf á samstarfi en það er líka ánægjulegt að heyra hér í hæstv. ráðherra fara yfir það sem búið er að gera og það er virkilega ánægjulegt að sjá og heyra að búið er að auka fjármagn til Bjarkarhlíðar. Ég held að það skipti miklu máli. Einnig að það sé búið að gera breytingar á löggjöf til að reyna að stemma stigu við því mansali sem blasir við okkur. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi líka hér breytingar á lögreglulögum. Að hvað eina sem getur orðið til þess að okkur gangi betur að stemma stigu við þessari meinsemd á íslenskum vinnumarkaði telji til bóta. En umfram allt, svo ég nefni aftur Kveiksþáttinn og tilfinningar mínar sem komu upp þegar ég hélt að við værum komin lengra: Pössum það að við verðum ekki hér (Forseti hringir.) eftir fjögur ár eða fimm ár að ræða sama mál.