155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Starfsmannaleigur og vinnumansal.

[16:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Eins og ég benti á í fyrri ræðu minni hér á undan er stór hluti vandamálsins sem við er að eiga svikin loforð ríkisstjórnarinnar sem stendur ekki við sinn hlut í vinnueftirliti. Ég vil þó nefna að það hefur verið aðeins meira líf og metnaður í félagsmálaráðuneytinu undir forystu hæstv. félagsmálaráðherra, en hæstv. dómsmálaráðherra ræðir þessi mál helst ekki. Það ætti þó að vera henni sérstakt kappsmál að koma í veg fyrir félagsleg undirboð á vinnumarkaði sem skekkja samkeppnisstöðu þeirra sem fara eftir reglum.

Þann 25. september sl. birtist athyglisvert viðtal á RÚV við Hildi Sunnu Pálmadóttur, teymisstjóra á ákærusviði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hún segir að erfitt sé að vita af vinnumansali en geta ekki brugðist við vegna fjárskorts. Við erum, virðulegur forseti, í þeirri stöðu að vita af vinnumansali en gerum ekkert. Fyrir ári síðan birti Morgunblaðið frétt um að GRETA, eftirlitsnefnd Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali, hefði áhyggjur af þeim takmarkaða árangri sem Ísland hefði náð frá síðustu úttekt sinni í baráttunni gegn vinnumansali. Þarna er um að ræða þriðju úttektina sem staðfestir slælegan árangur Íslands þegar kemur að vinnumansali. Að koma í veg fyrir vinnumansal getur aldrei verið á borði aðila vinnumarkaðarins en stéttarfélögin hafa ítrekað bent stjórnvöldum á vinnumansalsmál sem til staðar eru. Vinnumansalsmál eiga að vera á borði stjórnvalda þar sem dómsmálaráðherra ber ábyrgð. Svona mál geta verið hættuleg þar sem verið er að eiga við glæpahópa og þar verður lögreglan að geta gripið inn í. Hins vegar er ekki að sjá að gera eigi einhverja bragarbót á þessu þrátt fyrir ákall lögreglunnar sem oft á tíðum setur sig í stórhættu. Þetta lýsir best stefnuleysi og ábyrgðarflótta ríkisstjórnarinnar.