Starfsmannaleigur og vinnumansal.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þeim hv. þingmönnum sem tóku þátt í þessari mikilvægu umræðu og hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör. Ég ætla að leyfa mér að ganga eftir svörum um tvö atriði sem mér fannst ég ekki alveg fá skýrt fram frá hæstv. ráðherra. Það er annars vegar varðandi þetta framkvæmdateymi í Bjarkarhlíð, sem ég efast ekki um að sé að gera sitt besta miðað við takmarkað fjármagn og mannafla til að takast á við þennan málaflokk. Ég myndi vilja spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta framkvæmdateymi hafi í raun sama umboð og sömu getu til að bregðast við og stóð til árið 2019 að samhæfingarmiðstöð ætti að geta haft og er hluti af okkar alþjóðlegu skuldbindingum að setja á fót. Stendur til að setja það á fót á einhverjum tímapunkti eða á að halda þessu í tilraunaverkefni hjá Bjarkarhlíð? Ég spurði: Hvers vegna hefur þetta ekki verið í meiri forgangi hjá þessari ríkisstjórn? Hvers vegna er staðan enn í dag sú að við vitum ekki umfang mansals á Íslandi? Hvers vegna er staðan í dag enn þá sú að það hefur ekki orðið ein sakfelling síðastliðin 15 ár, eins og bent var á af hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur hérna rétt áðan? Og hvernig stendur á því að við veitum ekki nægjanlegt fjármagn til þeirra stofnana sem verða að geta haft eftirlit með þessu? Nú spyr ég mig hvort Vinnueftirlitið hafi nægjanlegt fjármagn, eða ég spyr reyndar ekki mig heldur spyr ég hæstv. ráðherra hvort Vinnueftirlitið hafi nægilegt fjármagn, Vinnumálastofnun, til að fylgja þessu eftir, og lögreglan. Það þýðir lítið að vera með nýjar og fínar reglur ef það er enginn til að fylgja þeim eftir, virðulegi forseti.
Að lokum, og það sem ég tel kannski einna mikilvægast: Af hverju bólar ekkert á reglum til að vernda þolendur mansals frá því að þeim verði vísað úr landi, vísað á götuna, missi vinnuna, missi lífsviðurværið, láti þeir hafa sig út í að upplýsa stjórnvöld um brotastarfsemi á Íslandi?