155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Starfsmannaleigur og vinnumansal.

[16:22]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmönnum kærlega fyrir þessa góðu umræðu og ég tek undir með hv. þingmönnum að vinnumansal er auðvitað algjörlega óþolandi og ólíðandi.

Aðeins varðandi Bjarkarhlíð. Sett var inn fjármagn til hennar til þess að geta samhæft aðgerðir, líkt og hv. þingmaður kom inn á. Það hefur verið í umræðunni að við viljum koma á samhæfingarmiðstöð til lengri tíma en Bjarkarhlíð hefur verið að sinna þessu afskaplega vel og þess vegna ákváðum við að veita meira fjármagn til þeirra nýlega.

Ég vil líka nefna að það er margt sem hér hefur verið nefnt sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Það mætti nefna hegningarlöggjöfina, það mætti nefna það að sum Norðurlöndin hafa farið þá leið að vera með vægari refsingar í vinnumansali miðað við mansal eins og kynferðislegt mansal, þannig að það er eitthvað sem við gætum litið til. Þetta er auðvitað alþjóðlegt vandamál sem um er að ræða. Við getum litið mun meira til Finnlands, svo dæmi sé tekið. Norrænu samstarfsneti var komið á núna í formennsku Íslands í fyrra sem hefur það að markmiði að vinna gegn atvinnutengdri brotastarfsemi.

Mig langar rétt aðeins í lokin að fara yfir það sem hefur verið gert hér á Íslandi af stjórnvöldum. Keðjuábyrgðin var sett inn 2018 og frekari lagaheimildir vegna eftirlits. Samhæfingarvettvangurinn sem leiddi til þess sem gerðist í Quang Lé-málinu var settur á 2019 og lögfestur núna í vor. Við nefndum Bjarkarhlíð hérna áðan og samstarfsnefndin, sem er núna lögfest, á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, sem er eitthvað sem ég bind miklar vonir við, á að koma með tillögur að stefnu og aðgerðum og er eitthvað sem öll voru sammála um að kæmi hér inn.

Svo aðeins rétt í blálokin um eftirlitið. Samkvæmt lögunum sem við samþykktum í vor erum við að flytja eftirlitið með starfsmannaleigunum (Forseti hringir.) og fleiri þáttum frá Vinnumálastofnun yfir til Vinnueftirlitsins til að reyna (Forseti hringir.) að ná fram meiri samhæfingu. Ég hef jafnframt aukið fjárframlög til Vinnueftirlitsins og það þarf (Forseti hringir.) að koma í ljós hvort þau dugi eða ekki, en ég hef látið þau fá (Forseti hringir.) sem nemur einu aukastöðugildi.

(Forseti (ÁsF): Ég minni hæstv. ráðherra á að halda sig innan ræðutímans.)