framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025--2028.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari áætlun einlæglega sem tekur á fjölbreyttum þáttum kynjajafnréttismála. Mig langar að tæpa á nokkrum þeirra í því skyni að lyfta upp mikilvægum áherslumálum. Mat á hugrænni vinnu kynjanna, öðru nafni þriðju vaktinni eða framkvæmdastjórn heimilis og einkalífs, er mikilvægt samfélagsmál sem verður til þess að auka meðvitund um það álag sem sú vinna felur í sér og konur inna af hendi að langmestu leyti ofan á aðra ábyrgð sem getur leitt til ofálags og ýmissa heilsufarsvandamála í kjölfarið.
Í fjölmenningarlegu samfélagi er mikilvægt að stuðla að menningarnæmi og menningarlæsi, ekki síst þegar kemur að kynjajafnréttismálum. Staðalímyndir kvenna af erlendum uppruna geta leitt til margþættrar mismununar vegna kyns, menningar og uppruna. Það er því mikilvægt að vandað fræðsluefni sé fyrir hendi varðandi þessa þætti. Það er grundvallaratriði að kynjajafnréttis sé gætt í nýsköpunarumhverfinu en þar hefur löngum hallað á kvenkynsfrumkvöðla og þeirra starf. Án kynjaðra sjónarmiða á þeim vettvangi fer samfélagið á mis við fjölbreytni sem skiptir sköpum fyrir lifandi frumkvöðlastarfsemi. Áherslur kvenna og kvára í nýsköpun eru oft á tíðum aðrar en karla og mikilvægt er að greina stöðu kvenna og kvára í styrkjaumhverfinu og stoðkerfi nýsköpunar á þessum vettvangi, einkum í tæknigeiranum.
Gervigreind leikur gríðarstórt hlutverk í lífi okkar, mun meira en við flest gerum okkur grein fyrir. Þar má bæði nefna algrím samfélagsmiðla og efnisveitna sem lesa okkur og meta út frá ákveðnum breytum og beina okkur út frá slíku á þær hugðarlendur sem taldar eru okkur helst að skapi og skapa þannig afkima eða bergmálshella sem eru skaðlegir fyrir lýðræði og opna hugsun. En gervigreind er beitt víðar, t.d. til að skanna atvinnuumsóknir og leggja til hvaða umsækjendur komist áfram, til að greina sjúkdóma, í læknisfræðilegum tilgangi o.s.frv. Og tæknin er ekki hlutlaus. Algrímin eru hönnuð af fólki, oftast karlmönnum og oft eru karllæg gildi og karllæg gögn lögð til grundvallar. Það er því lykilatriði að vera meðvituð um þessar skekkjur sem eru innbyggðar í gervigreindina svo að hægt sé að vinna gegn þeim með því annars vegar að gera yfirlit á breiðum grundvelli og hins vegar sérstakar tillögur til stjórnvalda til að bregðast við.
Eitt af stærstu kynjuðum málunum á vinnumarkaði er ójafnt mat á virði karla- og kvennastarfa, þ.e. þeim störfum þar sem hlutfall kynjanna er mun meira í eina átt en aðra. Þau störf sem mættu teljast hefðbundin kvennastörf, svo sem umönnunarstörf, kennsla á leikskólum o.s.frv., eru almennt metinn lægri til launa en starf í byggingarvinnu svo að dæmi séu tekin. Kynbundinn vinnumarkaður er helsta orsök kynbundins launamunar. Verkalýðshreyfingin hefur bent á að kynbundinn launamunur er félagslegt fyrirbæri sem á sér sögulegar og menningarlegar rætur. Hún lagði sérstaka áherslu á virðismat kvennastarfa í tengslum við kjarasamninga í mars síðastliðnum og að samhliða verði gerðar rannsóknir á launamun kynjanna og launamun milli innfæddra kvenna og innflytjendakvenna á Íslandi.
Annað mikilvægt mál sem tekið er á í þessari áætlun er staða kvenna í fangelsum landsins. Lagt er til að auka þekkingu starfsfólks Fangelsismálastofnunar á mismunandi áhrifum og afleiðingum áfalla á kynin svo að hægt sé að skapa umhverfi sem eykur á öryggistilfinningu þeirra sem vistast í fangelsum og enn fremur að þjálfa starfsfólk fangelsanna í að sinna kvenkyns og kynsegin föngum. Þá eru á dagskrá forvarna- og viðbragðsáætlanir til að tryggja öryggi fatlaðra kvenna gegn ofbeldi en viðkvæmir og jaðarsettir hópar eru í sérstaklega mikilli hættu af hendi ofbeldismanna.
Talandi um ofbeldismenn eru karlar í afgerandi meiri hluta þeirra sem beita ofbeldi og því mikilvægt að virkja karla í baráttunni gegn hvers kyns ofbeldi, einkum þó kynbundnu og kynferðislegu, og ekki síður að bjóða upp á þjónustu og úrræði fyrir gerendur í kynbundnum ofbeldismálum. Það er löngu tímabært að beina sjónum að því að ofbeldi á sér ekki stað í tómarúmi og mikilvægt að til séu úrræði fyrir gerendur til að draga úr líkum á því að þeir brjóti aftur af sér og greina jafnframt ástæðu þess að þeir beittu ofbeldinu ef kostur er en sú þekking er dýrmæt í forvarnaskyni.
Markviss kynja- og jafnréttisfræðsla á öllum skólastigum er lykilatriði í áætluninni, ekki síst í framhaldsskólum, til að tryggja inngildingu innan skólanna og færni kennara til að flétta jafnréttis- og kynjafræðslu inn í aðra kennslu. Þar verður að leggja sérstaka áherslu á kynfræðslu. Kynlíf er mikilvægur félagslegur og tilfinningalegur hluti lífsins og fræðsla um það er grunnþáttur í þroska barna og ungmenna og mikilvægt veganesti inn í framtíðina. Börn og ungmenni verða fyrir stöðugu áreiti úr umhverfinu hvað varðar kynlíf, kynverund sína og annarra, líkamsímynd, kynferðisleg samskipti og mörk í samskiptum. Markviss alhliða kynfræðsla, auk hefðbundinnar líffræðilegrar kynfræðslu, eykur færni þeirra til að meta slíkar upplýsingar og taka afstöðu til þeirra á heilbrigðan og jákvæðan hátt og kemur í veg fyrir kynferðislegt og kynbundið ofbeldi fyrir öll kyn. Því er fagnaðarefni að auka skuli fræðslu um einelti, kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi í framhaldsskólum.
Virðulegi forseti. Við stærum okkur með réttu af árangri í jafnréttisbaráttu kynjanna á heimsmælikvarða en þó er margt óunnið á þeim velli. Því er mikilvægt að halda baráttunni áfram á öllum sviðum, ekki síst hér á Alþingi, með þeim tækjum sem okkur standa til boða og ég fagna þessari áætlun sem einu slíku gríðarlega mikilvægu tæki.