155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

myndlistarlög.

16. mál
[16:43]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á myndlistarlögum, nr. 64/2012, þ.e. um framlag til listaverka í nýbyggingum. Þetta frumvarp var áður lagt fram á 154. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu þá.

Í IV. kafla myndlistarlaga er að finna ákvæði um listaverk í opinberum byggingum. Má þar nefna 13. gr. sem kveður á um að opinberar byggingar og umhverfi þeirra skuli fegra með listaverkum. Jafnframt er í 14. gr. mælt fyrir um skyldu hins opinbera til að verja a.m.k. 1% af heildarbyggingarkostnaði opinberrar nýbyggingar til listaverka í henni og umhverfi hennar. Í lögunum er hvergi að finna undantekningu frá þessum kröfum 14. gr. og gildir hún því ávallt, óháð eðli og hlutverki byggingarinnar.

Nú geta byggingar verið ákaflega mismunandi á vegum hins opinbera, virðulegi forseti. Þær geta verið margar þannig að almenningur eigi erindi í þær og þær séu þannig fyrir augum á öllum alla daga á meðan aðrar eru jafnvel bannaðar almenningi. Þannig er hlutverk ríkisins fjölbreytt í því samhengi. Heildarbyggingarkostnaður nýbygginga getur líka verið mjög hár og það má taka kannski dæmi um mestu fjárfestingu sem við höfum ráðist í, Íslendingar, en áætlaður heildarbyggingarkostnaður nýs Landspítala er 210 milljarðar kr. Í því tilfelli er hinu opinbera skylt, samkvæmt þessu ákvæði í gildandi lögum, að fjárfesta í listaverkum fyrir spítalann fyrir að lágmarki 2,1 milljarð kr. og að mati flutningsmanna þessa frumvarps er ekki unnt að réttlæta slík fjárútlát til listaverkakaupa.

Markmið þessa frumvarps er því að afnema þessa lagalegu skyldu ríkisstofnana og að það verði háð mati hverju sinni hversu langt menn vilja ganga. Við sjáum ekki tilefni til þess að binda hendur hins opinbera hvað listaverkakaup varðar, eins og ég sagði, í þessari grein, en teljum eðlilegt að við slíkar ákvarðanir sé litið til starfsemi og eðli bygginga og stöðu ríkisfjármála hverju sinni. Í frumvarpinu er því lagt til að 14. gr. myndlistarlaga um að verja skuli a.m.k. 1% af heildarbyggingarkostnaði opinberrar nýbyggingar til listaverka í henni og umhverfi hennar verði felld brott. Eftir sem áður verður þó skylt að fegra nýbyggingar með listaverkum, sbr. 13. gr. laganna sem stendur óbreytt.

Virðulegur forseti. Það er mikið af listaverkum í eigu ríkisins nú þegar og það er sjálfsagt að við gætum allrar skynsemi þegar kemur að þessum fjárfestingum og höfum ekki lögboðnar skyldur til að stíga svo stór skref þegar um dýrar byggingar er að ræða og þær eru margar í pípunum á næstu árum. Við leggjum til að þetta verði háð mati í hverju einstöku tilfelli.