Sundabraut.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér enn og aftur fyrir þessari þingsályktunartillögu minni um Sundabraut og nota hvert tækifæri til að tala um þjóðhagslegt mikilvægi þess að henni verði komið á hið fyrsta. Meðflutningsmenn mínir á þessari tillögu eru hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, Birgir Þórarinsson, Teitur Björn Einarsson, Óli Björn Kárason, Diljá Mist Einarsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Berglind Ósk Guðmundsdóttir.
Tillagan hljóðar þannig að Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að ráðast í samvinnuverkefni um lagningu Sundabrautar, sbr. f-lið 2. mgr. 1. gr. laga um samvinnuverkefni og samgönguframkvæmdir, nr. 80/2020, þannig að einkaaðili annist fjármögnun framkvæmdarinnar í heild. Ráðherra þurfi svo að gera Alþingi grein fyrir framgangi málsins.
Ég er að flytja þetta mál í fimmta sinn en Sundabraut er miklu eldri hugmynd en það. Hún er meira að segja eldri en sú sem hér stendur en það var fyrst árið 1975 sem við sáum tillögur í aðalskipulagi Reykjavíkur að Sundabraut, eða Kleppsvíkurbrú eins og hún var kölluð þá. Flestum er kunnugt um þrætueplið er varðar Sundabraut. Reglulega hefur þetta mál komið upp og margir talið það nauðsynlegt, aðrir minna nauðsynlegt og eins og oft vill verða hefur þetta verið eitt af þeim málum sem okkur hefur tekist að rífast um í hálfa öld.
Sem betur fer er nú margt að gerast í þessum efnum og Vegagerðin er núna í samvinnu við Reykjavíkurborg að undirbúa Sundabraut frá Sæbraut að Kjalarnesi. Þetta er núna í umhverfismati og sérstakur starfshópur hefur tekið til starfa við að vinna þetta verkefni og ég vænti þess að sjá líka fljótlega viðskiptaáætlun um þetta mannvirki. Þrátt fyrir það fannst mér ástæða til þess að leggja málið fram aftur og ég ætla ekki að hætta að tala fyrir því fyrr en ég get farið að keyra á þessari ágætu Sundabraut, sem er ofboðslega mikilvæg framkvæmd. Hún er mikilvæg fyrir höfuðborgarsvæðið. Hún er mikilvæg neyðarleið fyrir höfuðborgarsvæðið komi hér eitthvað upp. Hún er ofboðslega mikilvæg fyrir þann hluta þar sem ég bý uppi í Mosfellsbæ og fyrir Grafarvog og Grafarholt, vegna þess að það er í rauninni bara Ártúnsbrekka sem tengir okkur héðan og upp eftir og ef eitthvað kemur fyrir á þeim vegi er allt stíflað. Okkur ætti öllum að vera ljóst mikilvægi þess að hér séu greiðar neyðarleiðir.
En stærsti og þjóðhagslega hagkvæmasti þátturinn við Sundabraut er auðvitað að stytta vegalengdir og auðvelda þungaflutninga sem eru kannski á leiðinni út á land, inn í Hvalfjörð eða öfugt, frá landsbyggðinni og til Sundahafnar eða út á flugvöll. Þetta er því gríðarlega mikilvæg framkvæmd. Það skiptir líka máli hvernig framkvæmdin er hönnuð og hvar hún liggur því að ég held að það sé líka mjög mikilvægt að einstaklingar geti valið að fara þessa leið og að hún sé þannig hönnuð að hún létti verulega á Ártúnsbrekkunni og hafi viðkomu í Grafarvoginum. Hún geti þar af leiðandi nýst Grafarvogi líka til að komast aðrar leiðir niður í bæ.
Okkur er líka öllum ljóst hversu dýr og mikil framkvæmd Sundabraut er. Þess vegna tel ég að það sé ekki hægt að ætlast til þess að þessi framkvæmd komi úr því takmarkaða fé sem við nýtum í nýframkvæmdir á ári hverju. Þar er einfaldlega of mikið undir af öðrum framkvæmdum sem þarf að fara í og þess vegna er þessi framkvæmd auðvitað kjörin í einhvers konar samstarfsverkefni eða það sem hefur verið kallað PPP-verkefni, þar sem hið opinbera getur unnið með einkaaðilum að framkvæmd. Við eigum ágætismódel um einmitt þetta, Hvalfjarðargöngin. Ég efast ekki um að fólk myndi vera tilbúið að greiða fyrir það að keyra Sundabrautina.
Í greinargerðinni fer ég svolítið yfir sögu Sundabrautarinnar. Þar er talað um að þjóðhagslegur ábati af Sundabraut sé metinn á 186–238 milljarða kr. Ég hugsa að það sé nær að tala um 200–250 milljarða kr. á virði dagsins í dag. Þetta er auðvitað ábati sem felst í minni akstri, útblæstri og mengun og styttri ferðatíma vegfarenda og getur minnkað akstur á svæðinu um allt að 150.000 km á hverjum sólarhring. Ég ítreka því enn og aftur að við erum að tala um gríðarlega mikilvæga framkvæmd út frá öllum þeim sjónarmiðum sem við horfum til.
Ég vona að þessi þingsályktunartillaga fái umfjöllun í þinginu og í nefndum þingsins en ekki síst nota ég tækifærið til að hvetja ráðherra áfram í því verkefni sem ég veit að er komið af stað og má ekki hiksta, það er að klára þetta umhverfismat og komast að niðurstöðu um hagkvæmustu lagningu Sundabrautar og koma því í útboð eins og áætlanir standa til um. Ég ætla að leyfa mér að ítreka að við megum ekki eyða meiri tíma í að þrasa og þræta um þetta verkefni eins og okkur hættir svo oft til. Hvort sem það varðar spítala, brýr, göng eða eitthvað annað þá hættir okkur til að þrasa og rífast um það stöðugt og þó að það þurfi auðvitað lýðræðislega umræðu þá þurfum við stundum að taka ákvarðanir og keyra á þær. Þetta er einmitt eitt af þeim verkefnum þar sem nauðsynlegt er að setja fljótlega punkt við þrasið og þræturnar og hreinlega drífa okkur af stað.