Sundabraut.
Herra forseti. Ég vil rétt koma upp hérna og mæla með þessu gríðarlega mikilvæga máli. Þetta er bara eitt af þessum grundvallarmálum í okkar samfélagi til lengri tíma. Ef við höfum framtíðarsýn þá held ég að Sundabraut og þeir möguleikar sem hún skapar hafi gríðarlega mikil áhrif á okkar samfélag. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á hér þegar hún mælti fyrir þingsályktunartillögunni er hér um mjög svo þjóðhagslega mikilvægt verkefni að ræða og eitt það hagkvæmasta í okkar samfélagi. Það kom einnig fram að nú er búið að ræða þetta lengi, málið kom fyrst fram í umræðu varðandi skipulagsmál í Reykjavík 1975, þannig að það er orðinn langur tími sem þetta hefur verið til umræðu. Mig minnir að styttingin sem felst í að fara um Kjalarnesið út úr Reykjavík, um Sundabrautina, sé talin vera 6–10 km þannig að hún er töluvert mikil. Það er þá helst ferðatíminn sem hefur kannski meiri áhrif og losar um umferðarteppur og slíkt, þannig að þessar styttu vegalengdir, ferðatími og síðan náttúrlega fækkun slysa, sem verður með öllum styttingum, eru mikilvæg atriði. Mig minnir að innri vextir þessara framkvæmda, sem eru taldir í skýrslu sem var gerð fyrir ekki svo löngu síðan varðandi þessa framkvæmd, gætu verið, mismunandi eftir útgáfum, 10–14%, innri vextir eða arðsemi af verkefninu, þannig að þetta er mjög arðsamt og gott verkefni.
Við þekkjum það að undanfarin ár hefur sérstakur starfshópur verið að vinna að verkefninu og mér hefur skilist á þeirri umræðu að nú sé verkefnið komin lengra heldur en við höfum áður séð í fyrri tilraunum til að koma því á legg þannig að vonandi horfum við til þess að það komist á góðan rekspöl og að það haldi áfram á þeim góða rekspöl sem það er á núna og eins að starfshópurinn nái að skila góðu verki inn í það að bjóða verkefnið út.
Hér er verið að horfa til svokallaðs PPP-verkefnis, samvinnuframkvæmdar. Þær smávægilegu ábendingar sem ég vildi koma með inn í þessa umræðu sem snýr að þessu eru að það þarf kannski að skoða aðeins betur rammann og fara betur yfir hann, vinna betur þann ramma sem samvinnuverkefni í samgöngum vinna innan og til að jafna leikinn á milli þeirra sem vilja framkvæma og fjármagna. Áhættudeiling á framkvæmdinni verður að vera skýrari og í meira jafnvægi. Takmarkalaus áhætta þýðir hærri kostnað en þetta þýðir að hið opinbera verður að taka meiri áhættu enda er samfélagslegur ábati verksins gríðarlegur, eins og kom fram hjá hv. þingmanni hér á undan, Bryndísi Haraldsdóttur. Samfélagslegi ábatinn réttlætir raunverulega sanngjarnari áhættudreifingu.
Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt í þessu máli og almennt varðandi það þegar við erum að ræða þessi verkefni, svokölluð PPP-verkefni, hvort sem það er sem Ölfusárbrú eða annað umhverfi í kringum þessar framkvæmdir, að skýra rammann utan um verkefnin og dreifa kannski betur áhættu og öðru og kannski fyrst að fremst að nálgast betur að aðlaga þetta lagaumhverfi um samvinnuverkefni í vegagerð miðað við hvernig gert er varðandi svipuð eða sambærileg verkefni eins og þau gerast á Norðurlöndunum. Það mun styrkja aðkomu erlendra verktaka og fjármagns í samkeppni um verkefni.
Þetta er kannski það sem við erum að sjá varðandi Hornafjarðarfljótið og Ölfusárbrúna og mögulega þá fleiri verkefni í framtíðinni, að við þurfum raunverulega að gera lagaumhverfi í tengslum við verkefnin, koma því nær því sem við þekkjum í nágrannaríkjunum. Við höfum séð mjög góð verkefni eins og í Færeyjum, Noregi og víðar um alla Evrópu, á þessari leið, að nýta veggjöld til að byggja upp í einkaframkvæmd vegi og annað til að hraða uppbyggingu. En ég vildi rétt koma inn á þetta, mikilvægi þess að við komum upp sambærilegu lagaumhverfi hér á Íslandi til að byggja þetta á.
Kannski rétt í lokin eitt sem er ánægjulegt, umhverfismatsskýrsla í tengslum við verkefnið er á lokametrum og byggt á henni og viðskiptaáætlun grundvallast endanleg útfærsla á leiðarvali, en eins og við þekkjum hefur bæði verið gangnaumræða og umræða um að byggja brú í tengslum við verkefnið. En þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni og eins og ég hef oft talað um hér í þingsal og lagt mikla áherslu á þá þarf að stytta vegalengdir á milli Akureyrar og Eyjafjarðar og raunverulega bara norður, norðvestur og norður um land. Þetta verkefni er stór liður í því ásamt nokkrum öðrum verkefnum að hægt sé að stytta leiðina milli Akureyrar og Eyjafjarðar um 45 mínútur. Það er því gríðarlega mikilvægt að ná framförum í þessu. Ég fagna því svo sannarlega að ég hafi tækifæri, þessi fáu tækifæri sem bjóðast, til að ræða þetta mikilvæga mál.
Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.