155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Sundabraut.

61. mál
[17:04]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem rak mig upp í pontu í andsvar voru einfaldlega orð hv. þingmanns um það hversu mikilvægt það væri að stytta leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar og það virtist vera helsta áhersluefni hans í samgöngumálum. Ef við horfum til umræðunnar sem var um Húnavallaleið í gær þá er í mínum huga mikilvægast af öllu í samgöngumálum að tengja byggðir landsins saman. Ég tel reyndar að það eigi að hafa þannig að þjóðvegur 1 hafi það hlutverk að tengja byggðir landsins, sé ekki bara stysta leið milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ég myndi vilja sjá þjóðveg 1 verða þannig í framtíðinni að hann myndi fara um Þverárfjallið til Sauðárkróks yfir í Héraðsvötn, inn í Hjaltadalinn og svo í Tröllaskagagöngum yfir í Eyjafjörðinn, það væri raunverulegur þjóðvegur 1. Í dag er t.d. Sauðárkrókur ekki við þjóðveg 1 … (HSK: Og Vatnsnesið er ... Hvammstanga.) (NTF: Já, af hverju ekki það?)

(Forseti (ÁsF): Ekki tala við ræðumann.)

Það er mjög mikilvægt að allar byggðir landsins — og ég veit að Akureyri verður kannski skilgreind sem borg í framtíðinni, ekki reyndar höfuðborg, en Eyjafjarðarsvæðið verður skilgreint sem borgarsvæði. Það er mjög gott að við eigum góðan öflugan stað til mótvægis við Reykjavík. En það breytir því ekki að við verðum að horfa á samgöngumálin þannig út frá allri byggð í landinu, þar á meðal Blönduós og alla þéttbýlisstaði Húnavatnssýslna.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um í seinna andsvari mínu er hvort það sé ekki kominn tími á það að við, þingmenn Norðvesturkjördæmis og Norðausturkjördæmis, knýjum á um það að Sundabraut verði lögð sem allra fyrst og fáum þá til liðs við okkur þá ágætu þingmenn sem eru flutningsmenn þessarar tillögu. Við getum náð langt upp í meiri hluta, nánast, um að knýja á um að Sundabraut verði lögð og tvöföldun Hvalfjarðarganga verði gerð sem allra fyrst, þá með Speli 2 sem framkvæmdaraðila og við myndum taka sama módel varðandi Spöl og var gert í Hvalfjarðargöngum og þá með Sundabraut líka. Við verðum að fara að gera þetta sem allra, allra fyrst. Landsbyggðin má ekki bíða.