155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Sundabraut.

61. mál
[17:06]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Í 15. skipti á síðasta sólarhring varðandi styttingar almennt: Þetta er umferðaröryggismál. Við erum að vinna að öruggari umferð. Ég reikna með að hv. þingmaður sé sammála mér um það að 10 km stytting með Sundabraut frá Kjalarnesi að Sæbraut sé umferðaröryggismál. Og er ekki hugmyndin einmitt að stytta líka vegleiðir? Er það ekki það sem þetta gengur svolítið mikið út á, og greiða samgönguleiðir? Bara nákvæmlega sama hugmyndafræði, þ.e. umferðaröryggi, stytta vegleiðir, ferðatíma. Þetta skapar mjög arðsöm verkefni í framhaldinu. Það er nefnilega mjög margt sambærilegt í þessum tveimur verkefnum sem við höfum rætt hérna síðasta sólarhringinn. Þetta er nákvæmlega sami hluturinn. Ég held að það sé enginn að fara t.d. — nú styttum við leiðina um tugi eða ég veit ekki hvað, þegar við fórum t.d. yfir Möðrudalsöræfin eða Háreksstaðaleiðina á sínum tíma fyrir 20 árum. Þá voru alveg aðilar sem vildu fara leiðina milli Austurlands og Eyjafjarðar í gegnum Húsavík: Jú, jú, við verðum að fara í gegnum Húsavík. Við verðum að fara um Kópasker, Raufarhöfn, við verðum að fara ströndina. En þetta er hugmyndafræðin og þróunin. Það þróast engar samgöngur. Þetta er umræða sem við verðum að taka vegna þess að þetta er bara hluti af því að þróa, styrkja og gera öruggari umferð, að gera umferðina hagkvæmari, vegna þess að hagkvæm umferð er það sem gerir landsbyggðina samkeppnishæfari og styrkir hana, flutningskostnað og annað, með nákvæmlega sama hætti og við erum að ræða varðandi Sundabraut. Það er eðli þessara framkvæmda, þ.e. að auka og bæta samkeppnishæfni þessara svæða sem Sundabrautin hefur á áhrif á. Þar er allt Vesturland undir, Vestfirðir, Norðurland. Um það snýst þetta verkefni þannig að við getum sleppt öllum útúrsnúningum þegar við erum að tala um þetta, eins og þetta snúist eitthvað um Akureyri. Þetta snýst um þetta samhengi og því skulum við halda til haga, alltaf.