155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Sundabraut.

61. mál
[17:08]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þingsályktunartillaga um Sundabraut, um að Alþingi álykti að fela innviðaráðherra að ráðast í samvinnuverkefni um lagningu Sundabrautar þannig að einkaaðili annist fjármögnun framkvæmdarinnar í heild, er mjög áhugaverð tillaga og hún minnir mig á mína eigin tillögu sem lýtur að því að hraða framkvæmdum á Sundabraut sem allra mest. Þetta er eitt mesta hagsmunamál landsbyggðarinnar, eitt mesta hagsmunamál íbúa Norðvesturkjördæmis og líka Norðausturkjördæmis hvað vegtengingu við landsbyggðina varðar. Ég óttast að það verði ekki staðið við samning innviðaráðherra við borgaryfirvöld þar sem kveðið er á um að það eigi að hefja framkvæmdir 2026. Og af hverju tel ég það? Það verður mótstaða gegn því að það verði lögð brú, sem er mun ódýrara. 40% meiri nýting yrði á brú en á jarðgöngum. Það er ekki einu sinni búið að ákveða hvort Sundabraut verði lögð í jarðgöng eða með brú. Við vitum það ekki enn þá og það er bara eitt og hálft ár þangað til 2026 gengur í garð — eða tæplega það, 15 mánuðir. Þannig að ég er stórefins um það. Ég tel að við munum sennilega lenda í svipuðu og með Teigsskóg. Ég var lögfræðingur Skipulagsstofnunar á þeim tíma. Teigsskógur var á mínu borði árið 2004 og 2005 og ég ók Teigsskóg í fyrsta sinn núna í ár og þá nýju brúna yfir Þorskafjörðinn.

Ég tel að þetta mál sem hér er til umræðu sé mikilvægt og ég geri ekki athugasemdir við að þetta fari í einkaframkvæmd svo lengi sem hafist verður handa sem allra fyrst. Í kjördæmaviku var ég svo heppinn að ég hitti fyrir stjórnarmann í Speli sem sá um framkvæmdina á Hvalfjarðargöngunum á sínum tíma sem eru ein stórkostlegasta samgöngubót Íslandssögunnar. Þá sagði hann að það væru til teikningar fyrir Hvalfjarðargöng II. Það væri hægt að fara í það að hafa Hvalfjarðargöngin tvíbreið, þ.e. tvær akreinar í báðar áttir, það væru til teikningar fyrir því en það þyrfti bara að ákveða að gera þetta og þá væri hægt að gera það með nákvæmlega sama fjármögnunarmódeli og var gert í Hvalfjarðargöngunum sem voru opnuð 11. júlí 1998 og hafa verið ein mesta samgöngubót Íslands um langan tíma.

Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að við horfum til þess varðandi ríkisfjármálin að það er svo mikið sem þarf að gera í samgöngumálum að við þurfum bæði að hafa þetta sterkan lið í fjárlögum en líka með einkaframkvæmd þar sem umferðin býður upp á það. Ég efast t.d. um það að fara í einkaframkvæmd og láta rukka fyrir þegar ekið er um Hornafjarðarfljót, nýja veginn þar sem mun vonandi koma í framtíðinni. Ég efast um að það sé næg umferð til þess. En ég tel að það eigi að líta á Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga sem einu og sömu framkvæmdina vegna þess að betri vegtenging til Vesturlands og til Vestfjarða og áfram á Snæfellsnes og svo á Norðurland er ein besta samgöngubót fyrir þessi héruð hvað lífsgæði varðar, vegna þess að samgöngur á Íslandi snúast mikið um vegalengdirnar til Reykjavíkur.

Annað sem ég er líka margbúinn að spyrja um í fjárlaganefnd er hvernig standi á því að Sundabraut sé ekki í höfuðborgarsáttmálanum. Ég hef líka spurt af hverju sé ekki farið í brú yfir Skerjafjörð eða jarðgöng yfir Skerjafjörð. Nei, það er verið að gera einbreiða brú yfir Fossvoginn fyrir strætó. Verðið á henni er búið að fjórfaldast og hún muni ekki breyta neinu, hún mun ekki hafa mikil áhrif. Það er meira verið að spá í það hvernig stál eigi að vera í þessari fínu brú. Þetta verður svona einkennismerki samgöngusáttmálans.

Sundabraut mun hins vegar, eins og kemur fram í greinargerðinni, taka á því og stuðla að því að það verða minni umferðarteppur á leiðinni frá Mosfellsbæ. Ég veit að hinn ágæti framsögumaður kemur úr Mosfellsbæ og þetta mun létta lífið fyrir Mosfellinga sem keyra í vinnu inn til Reykjavíkur. Það mun auka framleiðni. Þeir munu ekki þurfa að sitja í bílunum jafn lengi. Þetta er það sem þarf að gera. Það er gríðarlegt þjóðhagslegt tap af því að þurfa að sitja í bíl sínum til og frá vinnu kannski tvisvar sinnum 45 mínútur, einn og hálfan tíma á dag. Þjóðhagslegur ábati af Sundabraut er metinn á 186–238 milljarða kr. eftir því hver útfærslan verður. Það er alveg gríðarlega miklu eftir að slægjast þarna. Ef Sundabraut kæmi þá myndi það stytta aksturstíma fyrir fólk á Akranesi. 30% íbúa Akraness sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins og það mun stytta aksturstíma þeirra um líklega hálftíma á hverja leiðina, klukkutíma á dag. Við getum ímyndað okkur að ef það eru 5.000 manns sem sækja vinnu sína til Reykjavíkur á hverjum tíma þá eru þetta 5.000 tímar á hverjum degi. Við getum margfaldað það með öllum vinnudögum ársins. Þetta er framkvæmd sem við verðum að fara í á réttum tíma. Það er búið að skrifa undir samning innviðaráðherra við stærsta sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins, Reykjavík, og það verður að standa við þann samning. Ég stórlega efast um að það verði gert. Ef það eru ekki til nægir peningar á fjárlögum þá þurfum við að fara í einkaframkvæmd.

Við þurfum líka að endurtaka leikinn með Hvalfjarðargöng og fara þá í einkaframkvæmd, taka Hvalfjarðargöng II á þá framkvæmd. Það er alveg ótrúlegt hvernig staðið var að þeirri framkvæmd og klókindin þegar þeir hættu að borga af erlendum lánum 2004 og skiptu yfir í íslenska krónu þegar gengi dollarans var 59 kr. Geri aðrir betur. Það stuðlaði líka að því hve vel gekk að greiða niður af þeim erlendu lánum sem þar voru undir.

Ég styð þetta mál og ég tel mikilvægt að við stöndum saman, allir þingmenn Norðvesturkjördæmis, allir þingmenn Norðausturkjördæmis og þeir þingmenn sem hér eru og þeir þingmenn sem er annt um landsbyggðina og bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Ávinningurinn fyrir höfuðborgarsvæðið er augljós. Eins og kemur fram í greinargerðinni með þessu máli mun það stórbæta aðkomuna að Reykjavík og stórminnka umferðartafir á leiðinni frá Mosfellsbæ til höfuðborgarinnar. Við verðum að fara að taka innviðina föstum tökum hvað þetta varðar. Við getum ekki staðið lengur og beðið eftir því að það verði gert. Það er kominn tími til aðgerða nú þegar.

Ég er bara rétt að byrja ræðu mína og fyrst ég er kominn hérna í ræðustól vil ég minna á að á Íslandi eru 11 jarðgöng. Í Noregi eru 1.260 jarðgöng. Það eru 73 jarðgöng sem eru 6 km og það eru 33 neðanjarðargöng. Við erum með 11 jarðgöng. Stærðarmunurinn og ríkidæmið skýra ekki þennan vanda. Jarðgöng eru ekki lúxusvara, þau eru ekki lúxus. Það verður að fara að koma jarðgöngum á Súðavík, Mikladal og Hálfdán sem allra fyrst. Það sama á að sjálfsögðu líka við á Tröllaskaga vegna umferðaröryggis. Og að sjálfsögðu er umferðaröryggi í Súðavík algerlega óviðunandi hvað þetta varðar. Við verðum að gera stórátak í þessu máli. Þá þarf að nota skattpeningana og líka að fara í einkaframkvæmd ef við ætlum að ná skjótum árangri vegna þess að þetta mál þolir enga bið. Ég ætla rétt að vona að við lendum ekki í því sama og varðandi Teigsskóg, að þurfa að bíða í 20 ár eftir því að geta geta farið um Sundabraut. Í dag er árið 2024. Ég ætla rétt að vona að við séum ekki fyrst að fara að keyra um Sundabraut árið 2044.